-
Tvær nýjungar frá ADDI hafa sameinast: Novel hittir Trio. Novel-strúktúrinn passar fullkomlega við tækni addiCraSyTrio. Lykkjurnar renna ekki af: frábært bæði til að halda á og vinna með, jafnvel fyrir óvana prjónara. Útkoman er jafnar og fallegar lykkjur. Fæst í öllum helstu stærðum og hentar öllum skapandi höndum. ADDI Crasy Trio NOVELeru þríprjónar eða þrír bognir prjónar með stuttri snúru í miðjunni. Þeir eru 30 cm langir og hver prjónn er með einum beittum oddi og einum bljúgum. Þannig er hægt að velja hvorum oddinum er prjónað með. Þeir henta í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermaprjón. Fást í 2,5 - 5 mm. -
ADDI Crasy Trio eru þríprjónar eða þrír bognir prjónar með stuttri snúru í miðjunni. Þeir eru 26cm langir og hver prjónn er með einum beittum oddi og einum bljúgum. Þannig er hægt að velja hvorum oddinum er prjónað með. Þeir henta í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermaprjón. Fást í 4 - 8 mm. Fást einnig 26cm langir fyrir sömu not og að auki ermaprjón á fullorðins peysur. -
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. 12mm prjónarnir eru með slöngur, ekki snúru. -
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur. -
Vinsældir ADDI Novel hringprjónanna aukast stöðugt. Þeir eru hrufóttir með góðum oddi, úr málmi og lykkjurnar renna ekki eins vel á þeim sem gerir þá mjög hentuga fyrir þau sem vilja prjóna þéttar/fastar. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. -
Iron-On Transfer Pencil er blýantur er notaður til að yfirfæra mynstur á efni með straujárni. Teiknið með blýantinum á bökunarpappír, leggið yfir efnið, strauið og mynstrið færist yfir á efnið eða aðra fleti sem á að merkja. Hægt að nota hvert mynstur 2-3 sinnum. Notkun: (1) Setjið bökunarpappír á mynstrið sem á að nota. (2) Dragið mynstrið í gegn með Iron-On Transfer blýantinum. (3) Setjið mynstrið ofan á efnið og strauið yfir og þannig yfirfærist mynstrið á efnið. -
Clover Water Erasable Tracing Paper | Yfirfærslupappír 3 blöð í pakka. Hvert blað er hægt að nota mörgum sinnum. Pappír með bláu bleki sem yfirfærir munstur á efni. Notið yfirfærslupinna með pappírnum. Einfalt í notkun. Liturinn er vatnsleysanlegur. -
Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Áfylling á fatakrít í duftformi. Fást í 4 litum: Gul, hvít, bleik, blá og silfur. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi. -
Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald- Flosnál með handfangi
- 3-ply nál (fyrir 2-3 þræði af árórugarni)
- Nálaþræðari
- Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
- Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
- Útsaumsgarn t.d. árórugarn.
- Heklugarn nr. 40 eða annað garn í sama grófleika.
- Þéttofin efni (meðalþykk eða þykk): Poplín, denim, ullarefni, flóki o.fl.
-
Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald- Flosnál með handfangi
- Hringur, jafanál og þræðitvinni
- Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
- Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
- Léttband (medium eða DK) til stórband (bulky) garn.
- Grófur panamajafi (monk cloth) fæst í Storkinum.
-
Lykkjunælur eða lykkjuhaldarar sem eru hannaðar með þarfir prjónara í huga. Í staðhefðbundinnar nælu er prjónn með teygju úr silíkóni sem festist utan um prjóninn. Þannig haldast lykkjurnar á öruggum stað. Það sem gerir þetta áhald svo gott er að hægt er að hleypa lykkjunum fram af báðum endum. Frábært til að geyma lykkjur í handvegi og á fleiri stöðum. Kemur í fjórum gerðum eftir grófleika garnsins. Innihald: 2 lykkjunælur í pakka. -
"Quick-Cut" er þráðskeri sem flýtir fyrir þegar klippa þarf þræði eftir saumaskap. Hannaður til að skera á þræði fljótt og örugglega.- Auðvelt aðgengi.
- Hentar jafnt tvinna sem garni.
- Fingurnir geta ekki snert hnífinn sem eykur öryggið.
-
Þetta faldamál er hannað til að auðvelda þér að merkja saumför fljótt og nákvæmlega. Það er með merkingar frá 1 til 5 cm með 5 mm millibili og hentar flestum saumverkefnum. Faldamálið er úr málmi sem gott er að nota til að mynda skörp brot með straujárni eða sem sniðmát fyrir skörp horn á vösum og öðrum saumaskap. -
Air erasable merkipennarnir eru góðir þegar þegar merkja þarf fyrir saumum eða öðru á ljós og dökk efni efni. Það gefst nægur tími áður en merkingin hverfur. Leyfið blekinu að hverfa af sjálfu sér eða strokið merkinguna út með strokleðrinu á hinum enda pennans. Tíminn sem það tekur fyrir merkingarnar að hverfa alveg fer eftir rakasigi, hitastigi og magni bleks á efninu. -
Nálahús með 2 grófum jafanálum. Bogni oddurinn auðveldar þræðingu í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru Ø 2,5 x 7 mm á lengd. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:- Jafanálasett (# 339)
- Jafanálasett með bognum oddum (# 3121)
- Jafanálasett með fínum nálum (# 3168)
-
Nálahús með 3 fínum jafanálum. Bogni oddurinn gerir það auðveldara að þræða nálina í gegnum lykkjur. Nálarhúsið er með áskrúfuðu loki sem geymir nálarnar vel. Nálarnar eru nr. 20, 22 og 24. Fleiri nálahús með nálum fáanleg:- Jafanálasett (# 339)
- Jumbo jafanálasett (# 340)
- Jafanálasett með bognum oddum (# 3121)
-
- Nálarnar renna vel í gegnum efni.
- Nálarnar eru með gyllt auga sem er auðveldara að þræða.
- Nálarnar eru úr sérstaklega hertu stáli svo þær bogna hvorki né brotna.
- Nálaroddarnir eru beittir og henta í frjálsan útsaum, jafnvel með ullargarni því augað er stórt.
- Nálarnar fást í ýmsum grófleikum; hærra númer = fínni nál.
-
SASHIKO nálar - langar Nálar sem eru hentugar í sashiko útsaum þar sem mynstrum eru línulaga. Nálin rennur vel í gegnum efni, en það getur verið þægilegt að ýta á eftir nálinni með fingurbjörg, sérstaklega ef saumað er í gengum mörg lög af efni í sömu aðgerð. Efni: Stál Magn: 3 nálar í pk Framleiðsluland:Japan Stærðir: 1 nál 0,97 x 66,7 mm, 1 nál 0,97 x 60 mm, 1 nál 0,97 x 54 mm. 1 stk. þræðari fylgir með. Mælt er með sashiko útsaumsgarni í grófleika #20 eða #30. -
Þessi nál er sérstaklega hönnuð til að gera við prjónaðan og/eða ofinn fatnað þegar dregst til í honum. Tvær stærðir af nálum fylgja. Grófari nálin er góð fyrir lausar ofna/prjónaða voð. Fínni nálin er góð fyrir þéttara ofið/prjónaða voð. Hver nál er með kúlulaga oddi svo að þræðirnir í efninu klofni ekki. Nálarnar eru án auga og að hluta til með hrjúfa áferð. Notkun- Settu nálina í gegnum efnið þar sem dregið hefur til.
- Dragðu nálina í gegnum efnið, þá festist þráðurinn sem stendur út á réttunni við nálina og dregst yfir á röngu.
-
- Nálarnar eru með gyllt auga. Efst er U-laga op sem strekktur þráðurinn er lagður ofan á og smokrað í gegn. Þannig þræðist nálin án þess að stinga þurfi í gegnum nálaraugað. Sparar tíma og auðveldar þræðingu.
- Nálarnar renna vel í gegnum efni.
- Nálarnar eru sérstaklega hertar svo þær bogna hvorki né brotna.
- Nálaroddarnir eru beittir.
- 5 stk. í pakka í mismunandi stærðum.
-
Þessar fingurbjargir sameina mýkt, teygjanleika og góða vörn. Á endanum er málmplata sem verndar fingurinn og gúmmíhlutinn hleypir lofti í gegn. Teygjanleikinn auðveldar fingurbjörginni að laga sig að fingrinum. Léttar og notendavænar. Mál- Lítil (#6025) - 14,5 mm
- Miðstærð (#6026) - 15,5 mm
- Stór (#6027) - 17 mm
-
Fingurbjargir úr leðri sem laga sig að fingrinum. Það eru engir saumar á því svæði sem nálin snertir. Einstök lögunin myndar sléttan flöt yfir fingurgóminn.- Engir saumar eða spor sem hindra þegar þrýst er á nálina.
- Saumaðir í þrívídd svo þær passi betur á fingurinn.
- Tvöfalt leður fyrir öryggið.
- Lítil (#6028) - 14,5 mm
- Miðstærð (#6029) - 16 mm
- Stór (#6030) - 17,5 mm
-
Afsláttur!
Segularmband sem geymir nálar, títuprjóna og jafnvel lítil skæri á meðan saumað er. Þægilegt í notkun og sparar vinnu og tíma. Raufin í miðjunni auðveldar að ná takinu af nálunum/títuprjónunum. Ef eitthvað dettur á gólfið eða ofan í skúffu er leikur einn að halda seglinum nálægt og allt sem loðir við segul hoppar upp í hann! -
Það er auðvelt og öruggt að skipta um skurðarblöð í Clover skurðarhnífunum. Hvert skurðarblað kemur í sérstökum umbúðum til að koma í veg fyrir óþarfa snertingu.CLOVER 45mm skurðarblað í skurðarhníf. 1 stk. í pakka.Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa. -
Það er auðvelt og öruggt að skipta um skurðarblöð í Clover skurðarhnífunum. Hvert skurðarblað kemur í sérstökum umbúðum til að koma í veg fyrir óþarfa snertingu.CLOVER 18mm skurðarblað í skurðarhníf. 5 stk. í pakka.Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa. -
Góður skurðarhnífur með 18 mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum. -
Mýkir
Þurrkaraboltar eru bráðnauðsynlegir til að þurrka yfirhafnir með fyllingu úr dúni. Þeir veltast um í þurrkaranum og berja lofti í flíkina. En þurrkaraboltarnir (Dryer Dots) hafa annan og meiri tilgang. Þeir mýkja efni á náttúrulegan hátt, með varkárri og hávaðalausri veltandi hreyfingu.Spara tíma, peninga og orku
Dryer Dots boltarnir eru úr 100% umhverfisvænni ull sem drekkur í sig raka sem styttir þurrkunartímann. Boltarnir koma loftinu á meiri hreyfingu í þurrkaranum sem spara þess vegna orku.Lyktarlausir og án ofnæmisvaldandi efna
Boltarnir eru án mýkingarefna og ilmefnalausir, öruggir í notkun fyrir þau sem eru með viðkvæma húð, asma og ofnæmi. Það er einnig hægt að nota boltana til að mýkja ungbarnafatnað og taubleyjur. Þeir fara vel með efni.Endist í yfir 3.000 þurrkarafylli!
-
Góður skurðarhnífur með 45mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum. -
Hentugar heklunálar til laga lykkjuföll og leiðrétta lykkjur í prjóni. Notið oddinn til að rekja upp lykkurnar eins og þarf og krókinn til að hekla upp nýjar lykkjur. • Framleiddar úr “Takumi” gæða bambus. • Auðvelt að rekja upp lykkjur með oddinum. • Góður oddur á heklunálinni sem rennur auðveldlega í gegnum lykkjurnar. • Hægt að nota til að prjóna upp lykkjur. • Hægt að nota sem stutta heklunál. • Nytsamleg til að greiða úr garnflækju með oddinum t.d. í móhár garni. Tvær stærðir: 4,5 mm x 10 cm og 3,5 mm x 10 cm -
Búið til skúfa með alls konar garni! Hægt að nota útsaumsgarn, prjónagarn eða hvað sem ykkur dettur í hug. Sniðugt að eiga skúfa til að merkja/skreyta skærin og önnur áhöld. Hér er PDF skjal með leiðbeiningum um hvernig skúfarnir eru búnir til með þessu áhaldi: SKÚFAGERÐ.