Kennarar Storksins

GUÐRÚN HANNELE HENTTINEN er textílkennari frá textíldeild KHÍ og Háskólanum í Helsinki og menntunarfræðingur frá HÍ. Hún hefur alla tíð haft mikinn áhuga á hannyrðum, sérstaklega prjóni og útsaumi og svo bútasaumi. Áhuginn er bæði tengdur handverkinu sjálfu og sögunni og fræðilega hluta hannyrðanna.  Það er hennar köllun að miðla þessari þekkingu svo fleiri geti notið þeirrar ánægju sem helst í að skapa á fjölbreyttan hátt með ólíkum aðferðum.
Guðrún Hannele hefur tekið þátt í sýningum Handverks og hönnunar sem meðlimur Fitjakots. Hún er annar höfundur Prjónatals 2011 og haustið 2020 kom út bókin ÍSLENSKIR VETTLINGAR eftir hana.
Guðrúnu Hannele rekur garnverslunina Storkinn og hannar og þýðir prjónauppskriftir. Hún situr í íðorðanefnd um hannyrðir sem vinnur við að setja saman orðalista og skilgreina orð um prjón, hekl og fleiri hannyrðir.

HELGA THORODDSEN er textílkennari frá KHÍ og með mastersgráðu frá Colorado State University i textílfræðum. Hún var ein af stofnendum Þingborgarhópsins og er sérfræðingur í vinnslu ullar. Hún hefur alltaf prjónað með annari vinnu og núna undanfarið sinnt prjónhönnun meira en áður. Afraksturinn má m.a. sjá í bókinni PRJÓNATAL 2011 sem kom út haustið 2010. Helga er með vefsíðuna www.prjon.is og þar getið þið skoðað brot af því sem hún hefur hannað og prjónað. Helga kennir peysuhönnun og prjóntækni.
Helga vinnur nú að bókinni PRJÓNALÍF með peysuuppskriftum eftir hana sem mun koma út á haustdögum 2022.

KATRÍN JÓHANNESDÓTTIR er menntaður textílkennari frá Handavinnukennaraháskólanum í Skals/Viborg. Hún kennir útsaum og vélsaum við Hússtjórnarskólann í Reykjavík og á námskeiðum hjá Heimilisiðnaðarskólanum og víðar. Hennar sérfag er útsaumur í anda Skals, en hæfileikar hennar og þekking er afar fjölþætt. Þegar hún er ekki að sauma út eða prjóna gengur hún á fjöll innanlands og utan.

SÓLVEIG SIGURVINSDÓTTIR er menntaður textílkennari frá KHÍ, og hefur unnið við textílkennslu í grunnskóla og kennt á heklnámskeiðum hjá Storkinum frá 2004. Áhugamál hennar eru eru þráðavinna af ýmsum toga s.s. prjón, hekl og útsaumur. Sólveig er gjörsamlega óseðjandi þegar að þessum málum kemur og finnst alltaf gaman að læra og prjófa nýjar aðferðir og tækni er varða þráðavinnu.