EKKI BARA GARNVERSLUN

Storkurinn

Við sérhæfum okkur í að þjónusta áhugafólk um hannyrðir, aðallega prjón, hekl, útsaum og bútasaum. Storkurinn á stóran hóp af tryggum viðskiptavinum sem sækja okkur heim úr nærliggjandi hverfum og margir mun lengra að. Einnig fáum við margar heimsóknir frá ferðamönnum. Við kappkostum að veita góða þjónustu og hafa starfsfólk sem hefur kunnáttu og reynslu í hannyrðum.

STORKURINN er elsta hannyrðaverslun landsins. Við fluttum í Síðumúla 20, 108 Reykjavík um mitt sumar 2016 eftir 56 ára veru í Kjörgarði við Laugaveg 59.

Storkurinn er sælkeraverslun hannyrðafólks með úrval af garni, prjónum, bútasaumsefnum, tölum og hnöppum, hannyrðabókum, útsaumi og alls kyns fylgihlutum. Margir koma og dvelja lengi í versluninni enda er hægt að láta fara vel um sig, fá sér gott kaffi eða te í boði hússins og njóta þess að skoða. Við bjóðum viðskiptavinum aðstoð eftir þörfum við prjónaskapinn eða annað sem leysa þarf úr.

Við sérhæfum okkur í að þjónusta áhugafólk um hannyrðir, aðallega prjón, hekl, útsaum og bútasaum. Storkurinn á stóran hóp af tryggum viðskiptavinum sem sækja okkur heim úr nærliggjandi hverfum og margir koma mun lengra að. Einnig fáum við margar heimsóknir frá ferðamönnum. Við kappkostum að veita góða þjónustu og hafa starfsfólk sem getur miðlað kunnáttu sinni og reynslu.

Prjónakaffi og námskeið
Við höldum prjónakaffi á veturna, sjá nánar undir Viðburðir. Einnig eru í boði fjölbreytt námskeið á haustönn og vorönn. Sjá nánar undir Námskeið.

Aðgengi og bílastæði
Það er gott aðgengi að Storkinum við Síðumúla og næg bílastæði.

KORT sem sýnir staðsetningu Storksins

Um okkur:

Storkurinn ehf.

Vefsíða: www.storkurinn.is

Netfang: storkurinn (hjá) storkurinn.is

Kt. 511207-2660

Vsk.nr. 96578

Síðumúli 20,  108 Reykjavík

Sími:  551 8258

Prjónakaffi og námskeið

Við höldum prjónakaffi á veturna, sjá nánar undir Viðburðir.
Einnig eru í boði fjölbreytt námskeið á haustönn og vorönn. Sjá nánar undir Námskeið.

Storkurinn ehf.
Vefsíða: www.storkurinn.is
Netfang: [email protected]
Kt. 511207-2660
Vsk.nr. 96578
Síðumúli 20,  108 Reykjavík
Sími:  551 8258

For privacy reasons Google Maps needs your permission to be loaded. For more details, please see our Skilmálar – Greiðsla – Sending.
I Accept

Aðgengi og bílastæði
Það er gott aðgengi að Storkinum við Síðumúla og næg bílastæði.