Skila og skipta

Við bjóðum viðskiptavinum að taka frá garn til að tryggja að rétt lotunúmer sé til. Geymslutíminn er nokkrir dagar og jafnvel lengur ef um það er samið. Við sendum SMS að þeim tíma liðnum og ef ekki heyrist frá viðkomandi setjum við garnið aftur í sölu.

Við vitum líka að þegar garn er keypt er stundum nauðsynlegt að kaupa ríflega til að vera öruggur um að garnið dugi í flíkina sem á að prjóna. Þá er hægt að skila/eða skipta óáteknum hnotum/hespum sem verða afgangs. Við förum fram á að sölukvittun sé framvísað við skil á garni. Geymið því kvittunina þar til ljóst er hvort skila þurfi garni eða ekki.

Þá er líka vert að benda á að það eru alltaf einhverjar breytingar á garnframleiðslu, tegundir og litir detta út á hverju ári. Því borgar sig ekki að draga að skila garni ef prjónaskapnum er lokið á annað borð. Skilafrestur er 3 mánuðir á garni.
Þá viljum við benda á að af eðlilegum ástæðum er almenna reglan er sú að ekki er hægt að skila prjónum. Við gerum undantekningar ef um gjöf er að ræða. Þá setjum við innsigli á umbúðirnar.