1.200kr.

Peysan BYLGJA er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin.

Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Helga Thoroddsen

AÐFERР                

Bára og Bylgja eru systur sem báðar byggja á sama prjónagrunni þó á þeim sé munur bæði í útliti og prjóntækni. Peysan er úr fínbandi og mohair sem notað er tvöfalt til að fá fyllingu og þrívídd í bolinn. Peysan er prjónuð ofan frá og niður og auðvelt er að víkka og/eða síkka hana eftir óskum. Í bolnum er mikil þrívídd og skemmtileg kúluáferð sem fæst með því að prjóna marga uppslætti saman. Peysan nýtur sín sérstaklega vel yfir kjóla og pils, fyrir metnaðarfulla er hægt að bæta við síddina og gera kjól yfir leggings.

STÆRÐIR    

Mál (stærðir 1 – 9)
Sjá má sjá ítarlega máltöflu á heimasíðunni – prjon.is

PRJÓNFESTA
Í sléttprjóni eftir þvott 27 L x 37 umf = 10 cm á 3 mm prjóna.

GARN

Hedgehog Skinny Singles (fínband) og Lamana Premia (silk mohair) eða annað garn í sambærilegum grófleika.

Litur A = Hedgehog Skinny Singles 2 (2) (3) (3) (3) (4) (4) (4) (5) x 100 g  732 (732) (1098) (1098) (1098) (1464) (1464) (1464) (1830) m.

Litur B = Lamana Premia 3 (3) (4) (4) (4) (5) (5) (5) (6) x 25 g 900 (900) (1200) (1200) (1200) (1500) (1500) (1500) (1800) m.

PRJÓNAR

Prjónastærðir # 3, 3 ½ , 4 og 4 ½  mm