1.295kr.

Einrúm er ekki aðeins með garnlínu heldur einnig fullt af flottum uppskriftum. Þær eru margar hverjar hannaðar af Kristínu Brynju sjálfri en einnig öðrum hönnuðum. Upphafsstafir hönnuðarins eru merki uppskriftarinnar.

AFI – KGB 17

Hönnuður: Kristín Brynja

Garn: E-band sjá nánar magn fyrir neðan

Prjónar: 3 og 3,5 mm hringprjónar og sokkaprjónar

Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL (4XL) 5XL

Hægt er að prjóna peysuna sem langerma- eða stuttermapeysu.

Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á íslensku

Aðeins 3 eftir á lager

Nánar um uppskrift:

HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA

Ég kalla þessa peyslu KBG 17  AFI. Föðurafi minn, afi Arthúr, var Norðmaður. Hann ólst upp í Sandnessjöen í norður Noregi en flutti til Íslands árið 1925. Móðir hans, sendi syni sínum peysu í jólagjöf í kringum 1950. Það var falleg, dökkblá „kofta“ með hefðbundnu norsku mynstri sem hún hafði prjónað handa honum. Ég man eftir að hafa dáðst að þessari vel prjónuðu peysu sem unglingur. Ég man að mér fannst peysan ekki vera með réttu sniði.  Ég ákvað að prjóna peysuna stóra og pokalega eins og þá þótti flottast. Með hjálp ömmu Katrínar endurgerði ég peysuna hans afa, breytti sniðinu, en hélt einkennum hennar. Núna, 40 árum síðar, verður peysan hans afa mér aftur innblástur. Þessi peysa er prjónuð með berustykki eins og hefðbundin íslensk lopapeysa og greinilega má sjá hvaðan mynstrið er ættað, sem sagt frá „koftunni“ hans afa Arthúrs. 

BAND

Uppskriftin er hönnuð fyrir allar tegundir af einrúm E bandi.

AÐFERÐ

Byrjað er við hálsmálið og peysan er prjónuð út í eitt ofan frá og niður

STÆRÐIR: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL (4XL) 5XL 

Yfirvídd: 91 (98) 103 (107) 116 (119) 128 (131) 145 cm
Hálf yfirvídd: 45,5 (49) 51,5 (53,5) 58 (59,5) 64 (65,5) 72,5 cm
Sídd frá handvegi, med stroffi: + / – 42 cm
Ermalengd, stuttar ermar með stroffi: + / – 19 cm
Ermalengd, langar ermar með stroffi: + / – 46 cm

STUTTERMA PEYSA

Aðallitur A, E-1002 skólesít:  200 (200) 200 (250) 250 (300) 300 (350) 350 g
Mynsturlitur B, E-1013 klórít: 50 (50) 50 (50) 100 (100) 100 (150) 150 g.
Mynsturlitur C, E-1016 jaspís: 50 (50) 50 (50) 50 (50) 50 (50) 50 g.

LANGERMA PEYSA

Aðallitur A, E-1002 skólesít: 250 (250) 250 (300) 300 (350) 350 (400) 450 g.
Mynsturlitur B, E-1016 jaspís: 50 (50) 50 (50) 100 (100) 100 (150) 150 g.
Mynsturlitur C, E-1015 líparít: 50 (50) 50 (50) 50 (50) 50 (50) 50 g.

PRJÓNAR:

Hringprjónar 3 mm, 60 cm langir og 3,5 mm 40 og 60 cm langir. Sokkaprjónar  3 og 3,5 mm (eða langir hringprjónar fyrir töfralykkjuaðferðina).