1.200kr.

Peysan PETRÍNA er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin.

Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Helga Thoroddsen

AÐFERР                

Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður með svokallaðri tengiaðferð. Hún er með einstaklega kvenlegu og klæðilegu sniði og er prjónuð úr 1 þræði af móhári (mohair) og 1 þræði af handlituðu LITG Highland Merino á prjóna # 5 ½ og 6 mm. Aukavídd er fengin með því að stækka prjóna og auka út á bolnum til að fá gott A-snið. Peysan er prjónuð fram og til baka með sléttprjóni er með mjög litlum frágangi. Peysan er mjög mjúk, létt og þægileg, fullkomin einföld og klassísk peysa sem þægilegt er að fara í bæði yfir buxur og kjóla.

STÆRÐIR    

Mál (stærðir 1 – 9)
Sjá má sjá ítarlega máltöflu á heimasíðunni – prjon.is

PRJÓNFESTA
Í sléttprjóni (báðir þræðir saman) eftir þvott 20 L x 30 umf = 10 cm á 4 mm prjóna.

GARN

LITG Zebra Sock og Filcolana Tilia Kid Mohair eða sambærilegt garn. Prjónað með 1 þræði af hvorri garntegund.

LITG – 3 (3) (4) (4) (5) (5) (6) (6) (7) x 100 g (400 m/100 g) – 1200 (1200) (1600) (1600) (2000) (2000) (2400) (2400) (2800) m.

Filcolana – 6 (6) (7) (8) (9) (9) (11) (11) (12) x 25 g (210 m/25 g) –1260 (1260) (1470) (1680) (1890) (1890) (2310) (2310) (2730) m.

PRJÓNAR

Prjónastærðir # 4 – 5 ½ mm