1.200kr.

Peysan JÚLÍ er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin.

Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Helga Thoroddsen

AÐFERР                

Júlí er prjónuð úr fínbandi, mohair og silki og er einstaklega létt og mjúk, sannkölluð sumarpeysa. Peysan er prjónuð ofan frá og niður og er falleg yfir kjóla og við pils en einnig klassískar gallabuxur. Júlí er létt og þægileg með góða hreyfivídd í bolnum. Júlí innifelur margvíslega prjóntækni t.d. mislangar umferðir sem gera það að verkum að hún passar mjög vel yfir herðar og við hálsmál. Peysan er gefinn upp í 9 stærðum.

STÆRÐIR    

• Yfirvídd – 88 (99) (108) (118) (129) (139) cm, hreyfivídd er  4 – 6 cm.

• Mjaðmaummál – 96 (106) (116) (126) (136) (146) cm, hreyfivídd er 8 – 10 cm.

• Handvegsbreidd (þetta mál er helmingurinn af upphaldleggsbreidd með hreyfivídd 2 cm) – 14 (15) (16) (17) (18) (19) cm.

• Sídd – handvegur að affellingu – 30 (32) (34) (36) (38) (40) cm.

• Bakbreidd (handvegur til handvegs) – 50 (56) (60) (68) (70) (74) cm

PRJÓNFESTA
Í sléttprjóni eftir þvott 25 L x 39 umf = 10 cm á 3 mm prjóna.

GARN

Leizu Fingering Simple frá Julie Asselin (fínband) eða annað band í sambærilegum grófleika.

• Litur A (dökkbleikt) -– 1 (1) (1) (2) (2) (2) (2) (3) (3) x 100 g – 438 (438) (438) (876) (876) (876) (876) (1314) (1314) m.

• Litur B – (ljósbleikt) – 1 (1) (1) (1) (1) (2) (2) (2) (2) x 100 g – 438 (438) (438) (438) (876) (876) (876) (876) (876) m.

• Litur C – (dökkgrátt) –1 (1) (1) (1) (1) (2) (2) (2) (2) x 100 g, 438 (438) (438) (438) (438) (876) (876) (876) (876) (876) m.

PRJÓNAR

Prjónastærðir # 3 og 3 ½ mm.