1.200kr.

Peysan BÁRA er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin.

Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Helga Thoroddsen

AÐFERР                

Þessi peysa er afar skemmtileg í prjóni og innifelur margvíslega prjóntækni sem gaman er að læra. Peysan er úr fínbandi og mohair sem notað er tvöfalt til að fá fyllingu og þrívídd í bolstykkið. Peysan er prjónuð ofan frá og niður og er með mikla vídd í bolstykkinu. Auðvelt er að víkka og/eða síkka peysuna eftir óskum og hún er einstaklega falleg yfir kjóla en nýtir sín líka vel með leggings og gallabuxum. Hún er létt og þægileg með mikla hreyfivídd.

STÆRÐIR    

Mál (stærðir 1 – 9)
Sjá má sjá ítarlega máltöflu á heimasíðunni – prjon.is

PRJÓNFESTA

• 27 L x 37 umferðir = 10×10 cm (sléttprjón á prjóna # 3 eftir þvott).

• 25 L x 35 umferðir = 10×10 cm (sléttprjón á prjóna # 3 ½  eftir þvott).

GARN

Hedgehog Skinny Singles (fínband) og Mohair by Canard, Brushed Lace eða annað sambærilegt garn.

• Litur A = Hedgehog Skinny Singles 1 (2) (2) (3) (3) (3) (4) (4) (4) x 100 g 366 (732) (732) (732) (1098) (1098) (1098) (1464) (1464) m.

• Litur B = Hedgehog Skinny Singles 1 (1) (1) (1) (1) (2) (2) (2) (2) x 100 g 366 (366) (366) (366) (366) (732) (732) (732) (732) m.

• Litur C = Brushed Lace by Canard Mohair 5 (6) (6) (6) (7) (7) (7) (8) (8) x 25 g  1050 (1260) (1260) (1260) (1470) (1470) (1470) (1680) (1680) m.

PRJÓNAR

Prjónastærðir # 3, 3 ½ , 4 og 4 ½  mm