1.200kr.

Peysan ÁRÓRA í stuttri útgáfu er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og eftir hluta erma. Allt prjónað, ekkert samað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin.

Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.

HÖNNUN / UPPSKRIFT                                    

Helga Thoroddsen

AÐFERР                

Þessi peysa er prjónuð ofan frá og niður með svokallaðri tengiaðferð. Hún er með
kvenlegu og klæðilegu sniði og er prjónuð úr bandi í DK grófleika á prjóna # 3 ½ , 4 og 4
½ mm. Peysan er prjónuð fram og til baka, listinn síðast og er hann ásaumaður. Efri hluti
peysunnar er aðsniðinn en útsláttur sem fenginn er með útaukningum í bolnum gefa
henni fallegt og kvenlegt A – snið. Áróra er klassísk peysa sem fer fallega við kjóla.

STÆRÐIR    

Mál (stærðir 1 – 9)
Sjá má sjá ítarlega máltöflu á heimasíðunni – prjon.is

PRJÓNFESTA
Í sléttprjóni eftir þvott 22 L x 32 umf = 10 cm á 4 mm prjóna.

GARN

Marques (MCN DK) frá Primrose Yarn Co eða sambærilegt garn í léttbands (DK) grófleika.

6 (6) (7) (7) (8) (8) (8) (9) (9) x 100 g – 1230 (1230) (1435) (1435) (1640)
(1640) (1640) (1845) (1845) m.

PRJÓNAR

Hringprjónar 3,5, 4 og 4,5 mm.

PRJÓNFESTA

22 lykkjur og 30 umferðir á 4 mm prjóna = 10cm í sléttprjóni.