1.295kr.1.395kr.

Aukanál fyrir flosnál með handfangi.

MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering).

6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt).

3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni.

Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi.

Notkun – aðferð

Hægt er að sauma mismunandi spor með flosnálinni. Aftursting með því að stinga nálinni í gegnum yfirborð efnisins og endurtaka eftir beinni eða sveigðri línu. Þá er hægt að fylla upp í flötinn með því að stinga niður þétt. Til að fá lykkjaða flosáferð er stungið í saumaflötinn frá röngu og ef óskað er eftir þéttu flosi er stungið þétt frá röngu og lykkjurnar klipptar upp í lokin. Um að gera að leika sér með þetta áhald og prófa og kanna möguleikana.

Hægt að nota mismunandi grófleika af garni, en það þarf sérstaka nál fyrir hvern grófleika; allt frá einum þræði af árórugarni upp í fínband (4ply/fingering).

  • Prófaðu á þeim hluta efnisins sem sést ekki áður en byrjað er.
  • Götin sem myndast geta sést, fer eftir efninu sem notað er.
  • Notið garn sem kemst auðveldlega í gegnum nálaraugað.