895kr.

CLOVER Soft Touch heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun.

Krókurinn er mátulega beittur svo auðvelt er að stinga honum í gegnum lykkjuna án þess að kljúfa garnið.  Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra.

Handfangið er með gripfleti úr mjúku efni svo nálin sitji vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust.

Hægt er að kaupa Soft Touch heklunálar í stærðum 0,5mm til 6mm.