-
Tvær nýjungar frá ADDI hafa sameinast: Novel hittir Trio. Novel-strúktúrinn passar fullkomlega við tækni addiCraSyTrio. Lykkjurnar renna ekki af: frábært bæði til að halda á og vinna með, jafnvel fyrir óvana prjónara. Útkoman er jafnar og fallegar lykkjur. Fæst í öllum helstu stærðum og hentar öllum skapandi höndum. ADDI Crasy Trio NOVELeru þríprjónar eða þrír bognir prjónar með stuttri snúru í miðjunni. Þeir eru 30 cm langir og hver prjónn er með einum beittum oddi og einum bljúgum. Þannig er hægt að velja hvorum oddinum er prjónað með. Þeir henta í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermaprjón. Fást í 2,5 - 5 mm. -
ADDI Crasy Trio eru þríprjónar eða þrír bognir prjónar með stuttri snúru í miðjunni. Þeir eru 26cm langir og hver prjónn er með einum beittum oddi og einum bljúgum. Þannig er hægt að velja hvorum oddinum er prjónað með. Þeir henta í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermaprjón. Fást í 4 - 8 mm. Fást einnig 26cm langir fyrir sömu not og að auki ermaprjón á fullorðins peysur. -
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. 12mm prjónarnir eru með slöngur, ekki snúru. -
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur. -
Vinsældir ADDI Novel hringprjónanna aukast stöðugt. Þeir eru hrufóttir með góðum oddi, úr málmi og lykkjurnar renna ekki eins vel á þeim sem gerir þá mjög hentuga fyrir þau sem vilja prjóna þéttar/fastar. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. -
Iron-On Transfer Pencil er blýantur er notaður til að yfirfæra mynstur á efni með straujárni. Teiknið með blýantinum á bökunarpappír, leggið yfir efnið, strauið og mynstrið færist yfir á efnið eða aðra fleti sem á að merkja. Hægt að nota hvert mynstur 2-3 sinnum. Notkun: (1) Setjið bökunarpappír á mynstrið sem á að nota. (2) Dragið mynstrið í gegn með Iron-On Transfer blýantinum. (3) Setjið mynstrið ofan á efnið og strauið yfir og þannig yfirfærist mynstrið á efnið. -
Clover Water Erasable Tracing Paper | Yfirfærslupappír 3 blöð í pakka. Hvert blað er hægt að nota mörgum sinnum. Pappír með bláu bleki sem yfirfærir munstur á efni. Notið yfirfærslupinna með pappírnum. Einfalt í notkun. Liturinn er vatnsleysanlegur. -
Fatakrít í duftformi. Hægt að kaupa áfyllingar í 5 litum. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Áfylling á fatakrít í duftformi. Fást í 4 litum: Gul, hvít, bleik, blá og silfur. Fatakrít með lausu dufti er frábært áhald til að merkja efni. Í stað þess að draga blýant eða penna eftir efninu, er hjóli á enda krítarhylkisins rúllað til að merkja línu. Hjólið er með örlitlum götum sem hleypa krítinni út um leið og þrýst er á það. Það myndast lína með þéttum, smáum punktum. Krítin þvæst auðveldlega úr. Hægt að velja um mismunandi liti eftir lit efnisins sem vinna á með. -
Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi. -
Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald- Flosnál með handfangi
- 3-ply nál (fyrir 2-3 þræði af árórugarni)
- Nálaþræðari
- Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
- Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
- Útsaumsgarn t.d. árórugarn.
- Heklugarn nr. 40 eða annað garn í sama grófleika.
- Þéttofin efni (meðalþykk eða þykk): Poplín, denim, ullarefni, flóki o.fl.
-
Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald- Flosnál með handfangi
- Hringur, jafanál og þræðitvinni
- Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
- Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
- Léttband (medium eða DK) til stórband (bulky) garn.
- Grófur panamajafi (monk cloth) fæst í Storkinum.