-
CLOVER Takumi bambusprjónarnir eru hágæða prjónar sem uppfylla ströngustu skilyrði. Slétt áferð sem gerir prjónið áreynslulaust og skilar jöfnum lykkjum. Oddurinn mjókkar aflíðandi fram og bláoddurinn er rúnnaður þannig að það er auðvelt að prjóna 2-3 lykkjur saman og oddurinn klýfur ekki garnið. Snúran er glær úr næloni og samskeytin snurðulaus. -
Þessi nál er sérstaklega hönnuð til að gera við prjónaðan og/eða ofinn fatnað þegar dregst til í honum. Tvær stærðir af nálum fylgja. Grófari nálin er góð fyrir lausar ofna/prjónaða voð. Fínni nálin er góð fyrir þéttara ofið/prjónaða voð. Hver nál er með kúlulaga oddi svo að þræðirnir í efninu klofni ekki. Nálarnar eru án auga og að hluta til með hrjúfa áferð. Notkun- Settu nálina í gegnum efnið þar sem dregið hefur til.
- Dragðu nálina í gegnum efnið, þá festist þráðurinn sem stendur út á réttunni við nálina og dregst yfir á röngu.
-
Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi. -
Þessar fingurbjargir sameina mýkt, teygjanleika og góða vörn. Á endanum er málmplata sem verndar fingurinn og gúmmíhlutinn hleypir lofti í gegn. Teygjanleikinn auðveldar fingurbjörginni að laga sig að fingrinum. Léttar og notendavænar. Mál- Lítil (#6025) - 14,5 mm
- Miðstærð (#6026) - 15,5 mm
- Stór (#6027) - 17 mm
-
KNIT PRO hringprjónar úr bambus sem er deigari en birki og þola því meira átak. Prjónaoddarnir eru léttir og mjúkir viðkomu og samskeyti snúru og prjónaodds slétt. Hægt er að fá sokkaprjóna úr bambus, bæði stutta og langa. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Útsaumsnálar með oddi. 25 stk í pakka. Stærð #20 eða #22. Fróðleikur um nálastærðir HÉR. -
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur. -
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á DÖNSKU. -
Prjónasnúra úr mjúku efni. Snúran er með stuttum prjóni á öðrum endanum til að þræða í gegnum lykkjurnar sem á að geyma. Prjóninum er svo stungið inn í tappa á hinum endanum og hægt að draga snúruna í gegn eins langt og þarf. Öruggt og þægilegt. Styttri snúran er algjör snilld til að geyma lykkjur í handvegi eða hálsmáli og sú lengri fyrir lykkjur á bol, t.d. þegar peysa er prjónuð ofan frá og mátuð. Tvær lengdir fáanlegar- Stutt: 23-41 cm (#3161)
- Löng: 61-91 cm (#3162)
