Price range: 500kr. through 1.495kr.

  • Grófleiki:  Grófband / Aran
  • Innihald:  80% ull, 20% pólýamíd
  • Lengd/þyngd:  100 g/200 m
  • Prjónar:  4 – 5 mm
  • Prjónfesta:  18 lykkjur og 26 umferðir = 10 x 10 cm
  • Þvottur:  Ullarþvottakerfi við 40°C

Sjá magn sem þarf í barnapeysu fyrir neðan.

Ef óskað er eftir uppskrift með garnkaupunum, þarf að kaupa minnst 4 hnotur (dugar í minnstu stærðina).

7 VELJESTÄ (7 bræður) er vafalaust þekkasta garn sem framleitt hefur verið í Finnlandi og hefur verið mjög vinsælt á meðal prjónara þar. Garnið dregur nafn sitt af þekktri skáldsögu Aleksis Kivi sem kom fyrst út 1870. Sagan er löngu orðin hluti af þjóðarímynd Finna.

Garnið er blanda af ull og pólíamíð og hefur verið skilgreint sem sokkagarn. Nýverið gekk garnið í gegnum endurnýjun lífdaga. Ullarmagnið var aukið og er núna 80% ull og 20% pólíamíd í garninu, garnið er loftmeira og gljúpara og skemmtilegra að prjóna úr því.

Litapallettan er falleg og þetta garn er, auk þess að vera frábært í sokka, einnig gott í peysur á börn og fullorðna.  Styrkingin sem bætt er við ullina er auðvitað nauðsynleg í sokkaprjónið, en gerir peysurnar endingarbetri. Þetta er því upplagt garn í leikskólapeysur sem þurfa að þola eitt og annað.

Grófleikinn er á pari við grófband eða aran/worsted með 18 L á 10 cm. Það þarf 600 g í meðalstærð af kvenpeysu. Ein 100 g hnota dugar í hefðbundið sokkapar upp í stærð 38. Garnið þolir þvott á ullaþvottakerfi á allt að 40° C.

Athugið að í sokkaprjóni er ráðlögð prjónastærð 3,5 mm, en í önnur verkefni er hægt að nota 4-5 mm eftir eigin prjónfestu og prjónaverkefni.

Ef þið viljið kaupa uppskrift í leiðinni þá veljið þið hana og setjið í körfu eins og garnið. Uppskriftin kemur þá með garninu, útprentuð á íslensku.

GARNNMAGN Í BARNAPEYSUR

LILLI BARNAPEYSAN

STÆRÐIR: 98/104 (110/116) 122/128 ( 134/140) 146 cm

ALDUR: 2-4 ára (4-6 ára) 6-8 ára (8-10 ára) 10-12 ára

GARN:

Grunnlitur 200 (200) 300 (300) 300 g

Mynsturlitur A 100 (100) 100 (100) 100 g

Mynsturlitur B 100 (100) 100 (100) 100 g

KRÍA BARNAPEYSAN

STÆRÐIR: 92/98 (104/110) 116/122 (128/134) cm

ALDUR: 2-3 ára (3-4 ára) 5-7 ára (8-10 ára)

GARN:

Grunnlitur 200 (300) 400 (400) g

Mynsturlitur A 50 (50) 50 (50) g

TIMO BARNAPEYSAN

STÆRÐIR: 80 (92) 98 (104) 110 (120) 130 cm

ALDUR: 1 árs (2 ára) 3 ára (4 ára) 5 ára ( 6 ára) 7 ára

GARN:

Grunnlitur 150 (200) 250 (300) 300 (350) 400 g

Mynsturlitur A 100 (100) 100 (150) 150 (150) 150  g

Mynsturlitur B 100 (100) 100 (100) 100 (100) 100 g