1.295kr.1.595kr.

KNIT PRO hringprjónar úr bambus sem er deigari en birki og þola því meira átak. Prjónaoddarnir eru léttir og mjúkir viðkomu og samskeyti snúru og prjónaodds slétt. Hægt er að fá sokkaprjóna úr bambus, bæði stutta og langa.

Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds.

Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.