1.495kr.

  • Grófleiki: Fínband / fingering / 4ply
  • Innihald: 80% ull / 20% lín/hör
  • Lengd/þyngd: 208m/50g
  • Prjónfesta 10 x 10 cm:
  • Merilin: 3 mm prjónar: 26 L / 32 umf
  • Merilin + Alpaca 1: 3 mm prjónar = 24 L / 30 umf
  • Merilin + Alpaca 2: 3,5 mm prjónar = 22 L / 26 umf
  • Merilin + Silk Mohair: 4 mm prjónar = 20 L / 24 umf
  • Þvottur: Handþvottur við 30°C
  • Garnið er spunnið og litað í Perú

MERILIN er þrinnað garn úr blöndu af ull og líni/hör. Þetta garn kemur einstaklega vel út í alls konar útprjóni þar sem sýnileg áferð skiptir máli. Garnið er mjúkt og hentar einnig þeim sem eru viðkvæmir fyrir ull.  Línþráðurinn leggst flatur yfir ullargarnið og myndar skemmtilega hreyfingu í litina, þar sem línið tekur ekki lit á sama hátt og ullin. Merilin er frábært í barnapeysur og öll sem eru með viðkvæma húð.

Uppskriftir á Ravelry þar sem Isager Merilin er notað