1.495kr.

Isager Alpaca 2

  • Grófleiki: Fínband / Fingering / 4ply
  • Innihald: 50% alpaka, 50% ull
  • Lengd/þyngd: 250 m/50 g
  • Prjónfesta 10 x 10 cm:
  • Alpaca 2: 3 mm prjónar = 26 L / 30 umf
  • Alpaca 2 + Alpaca 1: 3 mm prjónar = 24 L / 28 umf
  • Alpaca 2 + Alpaca 2: 3,5 mm prjónar = 20 L / 26 umf
  • Alpaca 2 + Silk Mohair: 4 mm prjónar = 18 L / 24 umf
  • Þvottur: Handþvottur við 30°C

Uppskriftir á Ravelry þar sem Isager Alpaca 2 er notað

Isager Alpaca 2 er tvinnað garn úr 50% ull og 50% alpaka. Helsti kostur þess er mýktin sem gerir það sérstaklega hentugt í barnaföt. Notað eitt og sér er það líka fallegt í peysur eða gollur fyrir fullorðna, en hafa ber í huga að vegna mýktarinnar hentar það best í flíkur sem verða ekki fyrir miklu álagi. Mjúkt garn verður aldrei jafn slitsterkt og garn sem er spunnið úr harðari ull og hugsanlega þéttara spunnið. Aftur á móti hentar þetta garn mjög vel í trefla og þegar það er prjónað saman með öðrum þráðum úr úrvali Isager.