2.295kr.

Nokkrir litir á afslætti á útsölunni! #172, #183, #192, #201

  • Grófleiki: Léttband / DK
  • Innihald: 50% ull, 25% alpakaull, 25% viskós
  • Lengd/þyngd: 175m/50g
  • Prjónar: 3,5-4 mm
  • Prjónfesta: 22-24 lykkjur og 30-32 umferðir = 10 x 10 cm
  • Þvottur: Ullarvagga 30°C

Felted Tweed hefur verið framleitt um árabil og það er komin mikil og góð reynsla á það. Þetta er uppáhalds Rowan garn margra skiljanlega. Felted Tweed er einstaklega létt (og drjúgt), hefur fallega tvíd áferð og er til í ótrúlega mörgum fallegum litum sem auðvelt er að raða saman. Eiginleikar garnsins og litaúrval gera það tilvalið í tvíbandapeysur. Margar uppskriftir frá Rowan eru í boði og Marie Wallin er þar fremst hönnuða að okkar mati, með sínar klassísku tvíbandaprjónuðu peysur. Margar þeirr eru algjört augnayndi. Felted Tweed hentar líka mjög vel fyrir hekl.

Litir #200 til #205 voru sérstaklega valdir af Kaffe Fassett fyrir Rowan.