• somdn_product_page
    RANDALÍUS barnavettlingar með hliðarþumli. Sama hvor er á hægri og vinstri!
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • somdn_product_page

    REINDEER JACKET eða HREINDÝRA JAKKI er uppskrift frá Rowan úr Felted Tweed garninu þeirra sem er mjög létt og hentar í tvíbandaprjón. Fæst í yfir 50 litum.

    Peysan er prjónuð í stykkjum með tvíbandaprjóni í tveimur litum og er með sjalkraga. Litirnir og mynstrið gera hana vetrarlega og jafnvel jólalega.

    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku.
  • somdn_product_page
    Fullorðinssokkar fyrir URTH Uneek randalitaða sokkagarnið. Þessir sokkar eru prjónaðir frá tá og upp en þannig er hægt að nýta garnið best.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku.
  • FRÍ SOKKAUPPSKRIFT þegar 7 BRÆÐUR garnið er keypt, gildir til 15. ágúst. Ef verslað er í vefverslun setjið þá kaðlasokkauppskrift í athugasemdir.
    SOKKAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Góðir kaðlasokkar í þremur stærðum 36, 38 og 40 fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.
    Hællinn er bandhæll með styrkingu. Þá verður hællinn þykkari, mýkri og sterkari.
    Það er góð tilbreytinga að prjóna sokka með köðlum!
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 100 (150) 150 g af 7 Bræður / Veljestä
    Þið getið skoðað  7 Bræður garnið HÉR.
    Þið getið skoðað 7 Bræður Nummi garnið HÉR.
  • SOKKAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Góðir sokkar í þremur stærðum 36, 38 og 40 fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.
    Hællinn er bandhæll með styrkingu. Þá verður hællinn þykkari, mýkri og sterkari.
    Það er sérstaklega þægilegt að fara í og úr sokkum sem eru með stroffi frá legg niður að hæl.
    Þetta verða bestu heimasokkarnir!
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 100 (100) 150 g af 7 Bræður garni
    Þið getið skoðað  7 Bræður garnið HÉR.
    Þið getið skoðað 7 Bræður Nummi garnið HÉR.
  • SOKKAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Góðir sokkar með fallegum köðlum í einni stærð 38-39 fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.
    Hællinn er bandhæll með styrkingu. Þá verður hællinn þykkari, mýkri og sterkari.
    Skemmtilegt verkefni og góð tilbreyting frá hefðbundnum sléttprjónuðum sokkum.
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 150 g af 7 Bræður / Veljestä
    Þið getið skoðað  7 Bræður garnið HÉR.
    Þið getið skoðað 7 Bræður Nummi garnið HÉR.
  • TREFLAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKU
    Þessi trefill er marg búinn að sanna tilveru sína og tilgang. Hann heitir veiðimaðurinn því í veiði nýtist hann vel, en einnig við allar aðstæður á okkar svala landi.
    Tvær ástæður valda vinsældunum. Önnur er stærðin; hann er hæfilega stór, hægt að vefja tvisvar um hálsinn og binda einu sinni og það helst hann á sínum stað og þvælist ekki fyrir. Þá er þetta líka fullkomin stærð fyrir þá herra sem ganga í frökkum og vilja að trefillinn liggi innan frakkans og taki lítið pláss.
    Hin ástæða vinsældanna er garnið, það er hæfilega mjúkt en ekki of lint og heldur sér vel. Hver garnhnota eða -plata er úr kaflalituðu og sprengdu garni. Alls konar litir í boði.
    Trefillinn er einfaldur í prjóni, aðeins notaðar sléttar og brugðnar lykkjur og óprjónaðar lykkjur í byrjun umferðar. Fullkomið afslöppunarprjón.
    Prjónastærð: 3,5 mm
    Garnmagn: 100 g af ZAUBERWOLLE garninu í uppgefna stærð 20 x 125 cm.
    Þið getið skoðað  Zauberwolle garnið HÉR.
  • somdn_product_page
    Fullorðinssokkar fyrir URTH Uneek randalitaða sokkagarnið. Þessir sokkar eru prjónaðir frá legg og niður.
    Prjónastærð er 2,25 - 2,5 mm.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á ensku.
    • Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg að tá.
    • Það fylgir teikning af mynstrinu.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 2,75 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
    UPPSKRIFTIN ER Á ÍSLENSKU ATH. Ef þið kaupið NORO Silk Garden Sock garn í sokkana fylgir uppskriftin með FRÍTT. Veljið garnið, setjið í körfu og setjið í skilaboðagluggann hvaða uppskrift þið veljið með (fimm mismunandi í boði). Uppskriftin verður send í tölvupósti um leið og varan er afgreidd. NORO Sokkauppskrift: FLOTLYKKJUR (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: HLYNUR (prjónaðir frá tá) NORO Sokkauppskrift: LAUF (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: SNÚRA (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: STUÐLAR & GÖT (prjónaðir frá sokklegg)  

    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá tá að sokklegg.
    • Það fylgir teikning af mynstrinu.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 3,5 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.

    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg og niður.

    Barnasokkar með tvíbandaprjóni.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • somdn_product_page
    Einfaldir sokkar á börn og fullorðna með bandhæl.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • Sæbjörg er sokkar sem eru þægilegir í prjóni. Hællinn er hefðbundinn bandhæll, sem er líka þekktur undir nafninu Halldóruhæll. Hér er þó útgáfa þar sem hælstallurinn er með garðaprjónskanti sem minnkar líkur á að það myndist göt þegar hælstallslykkjurnar eru prjónaðar upp. Þá er bæði hælstallurinn og hæltungan með styrkingu eða prjónað með óprjónuðum og prjónuðum lykkjum á víxl til að gera hælinn þéttari og mýkri.
    Gægt er að hafa stroffið á sokkleggnum hærra og brjóta það tvöfalt, ykkar er valið. Þægindin við að stroffið nái niður að hæl er að þá er svo auðvelt að bregða sér í og úr sokkunum.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni, smellið á hana til að hlaða henni niður. Það er einnig hægt að smella á slóðina sem er að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Garn:  Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.
    Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með kaðli með snúnum sléttum lykkjum prjónaður á brugðnum grunni. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er íprjónaður. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Garn:  Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.
    Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með útprjóni  á handarbakinu. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er íprjónaður. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Garn:  Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.
    Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með köðlum. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er hliðarþumall með tungu. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  •  Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.
    Garn:  Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3  1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!
    Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  •  Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.
    Garn:  Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3  1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!
    Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Lítil, miðstærð og stór unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er ein með fallega útprjónuðum vettlingum. Tvær stærðir / tveir grófleikar af garni.
    Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (16 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst.
  • Höfundur: Hanne Andreassen Hjelmås, Torunn Steinsland
    Útgefandi: Forlagið (2026) Harðspjalda | 182 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 950 g
  • Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er ein með fallega kaðlaprjónuðum húfum
    Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (12 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst.
Go to Top