695kr.

Sæbjörg er sokkar sem eru þægilegir í prjóni. Hællinn er hefðbundinn bandhæll, sem er líka þekktur undir nafninu Halldóruhæll. Hér er þó útgáfa þar sem hælstallurinn er með garðaprjónskanti sem minnkar líkur á að það myndist göt þegar hælstallslykkjurnar eru prjónaðar upp. Þá er bæði hælstallurinn og hæltungan með styrkingu eða prjónað með óprjónuðum og prjónuðum lykkjum á víxl til að gera hælinn þéttari og mýkri.
Gægt er að hafa stroffið á sokkleggnum hærra og brjóta það tvöfalt, ykkar er valið. Þægindin við að stroffið nái niður að hæl er að þá er svo auðvelt að bregða sér í og úr sokkunum.

Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. 

Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni, smellið á hana til að hlaða henni niður.

Það er einnig hægt að smella á slóðina sem er að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.

Vöruflokkar: ,

UPPSKRIFT / ÚTFÆRSLA                                     

Guðrún Hannele

STÆRÐIR                    

3 stærðir – 36 (38) 40 (skóstærð)

LENGD OG BREIDD

Stroff 13 (14) 15 cm

sokkbolur ummál 20 (21,5) 23 cm

sokkbolur lengd 22,5 (25) 27,5 cm

GARN

RICO Superba Sky Wave eða sambærilegt garn

1 x 150g (420m)

Hægt er að prjóna tvenn pör af sokkum í minnstu stærð með styttra stroffi (eins og sokkarnir á myndinni). Annars eitt sokkapar í fullorðinsstærð og barnasokka úr afganginum.

PRJÓNAR

Sokkaprjónar 12-15 cm, þríprjónar eða þeir prjónar sem ykkur hentar að nota:

3 mm fyrir allan sokkinn.

PRJÓNFESTA

29 L á 3 mm prjóna = 10 cm í sléttprjóni í hring.