• Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg að tá.
    • Það fylgir teikning af mynstrinu.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 2,75 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
    UPPSKRIFTIN ER Á ÍSLENSKU ATH. Ef þið kaupið NORO Silk Garden Sock garn í sokkana fylgir uppskriftin með FRÍTT. Veljið garnið, setjið í körfu og setjið í skilaboðagluggann hvaða uppskrift þið veljið með (fimm mismunandi í boði). Uppskriftin verður send í tölvupósti um leið og varan er afgreidd. NORO Sokkauppskrift: FLOTLYKKJUR (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: HLYNUR (prjónaðir frá tá) NORO Sokkauppskrift: LAUF (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: SNÚRA (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: STUÐLAR & GÖT (prjónaðir frá sokklegg)  
    • Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá tá að sokklegg.
    • Það fylgir teikning af mynstrinu.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 3,5 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.

    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg og niður.

  • somdn_product_page
    Barnasokkar með tvíbandaprjóni.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • somdn_product_page
    Einfaldir sokkar á börn og fullorðna með bandhæl.
    Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku.
  • Sæbjörg er sokkar sem eru þægilegir í prjóni. Hællinn er hefðbundinn bandhæll, sem er líka þekktur undir nafninu Halldóruhæll. Hér er þó útgáfa þar sem hælstallurinn er með garðaprjónskanti sem minnkar líkur á að það myndist göt þegar hælstallslykkjurnar eru prjónaðar upp. Þá er bæði hælstallurinn og hæltungan með styrkingu eða prjónað með óprjónuðum og prjónuðum lykkjum á víxl til að gera hælinn þéttari og mýkri.
    Gægt er að hafa stroffið á sokkleggnum hærra og brjóta það tvöfalt, ykkar er valið. Þægindin við að stroffið nái niður að hæl er að þá er svo auðvelt að bregða sér í og úr sokkunum.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni, smellið á hana til að hlaða henni niður. Það er einnig hægt að smella á slóðina sem er að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Garn:  Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.
    Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með kaðli með snúnum sléttum lykkjum prjónaður á brugðnum grunni. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er íprjónaður. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Garn:  Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.
    Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með útprjóni  á handarbakinu. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er íprjónaður. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Garn:  Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.
    Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með köðlum. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er hliðarþumall með tungu. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  •  Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.
    Garn:  Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3  1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!
    Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  •  Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.
    Garn:  Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3  1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!
    Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Lítil, miðstærð og stór unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
  • Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er ein með fallega útprjónuðum vettlingum. Tvær stærðir / tveir grófleikar af garni.
    Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (16 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst.
  • Höfundur: Hanne Andreassen Hjelmås, Torunn Steinsland
    Útgefandi: Forlagið (2026) Harðspjalda | 182 bls. Tungumál: Íslenska Þyngd: 950 g
  • Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er ein með fallega kaðlaprjónuðum húfum
    Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (12 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst.
  • Brooklyn Tweed eru þekkt fyrir góðar, vel útfærðar uppskriftir. Vinnulýsingar og mynsturteikningar ítarlegar og margar ljósmyndir. Hér er ein falleg húfa með tvíbandaprjónuðum mynsturbekk. Val um tvær dýptir í uppskriftinni.
    Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír (16 bls. hefti) og er á ENSKU. Ath. ef þú ert eingöngu að kaupa eina útprentaða uppskrift og vilt fá hana senda veldu þá sækja í verslun og við sendum uppskriftina sem bréfapóst.
  • CLOVER TAKUMI bambusprjónarnir eru toppurinn, hágæða prjónar sem uppfylla ströngustu skilyrði. Áferðin er rennislétt, oddarnir hæfilega beittir, samskeyti prjónaodds og snúru alveg slétt og.... það er er sérstakt við þessa prjóna er að samskeyti odda og snúru snúast. Þessir prjónar hafa fengið hæstu einkunn í samanburðarprófum á prjónategundum. Ef þér líkar við bambusprjóna þá munu þessir verða í uppáhaldi. Slétta áferðin gerir prjónið áreynslulaust og skilar jöfnum lykkjum og snúarn snýst með og þvælist því aldrei fyrir. Oddurinn mjókkar aflíðandi fram og bláoddurinn er rúnnaður þannig að það er auðvelt að prjóna 2-3 lykkjur saman og oddurinn klýfur ekki garnið. Snúarn er glær úr næloni, samskeytin úr stáli og alveg snuðrulaus, oddurinn úr þéttasta hluta bambussins sem gerir prjóninn sterkan og endingargóðan.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Clover HRINGPRJÓNAR bambus

    Price range: 1.595kr. through 1.895kr.
    CLOVER bambusprjónar eru hágæða prjónar sem uppfylla ströngustu skilyrði. Slétt áferð sem gerir prjónið áreynslulaust og skilar jöfnum lykkjum. Oddurinn mjókkar aflíðandi fram og bláoddurinn er rúnnaður þannig að það er auðvelt að prjóna 2-3 lykkjur saman og oddurinn klýfur ekki garnið. Snúarn er glær úr næloni og samskeytin snurðulaus.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • CLOVER Takumi bambusprjónarnir eru hágæða prjónar sem uppfylla ströngustu skilyrði. Slétt áferð sem gerir prjónið áreynslulaust og skilar jöfnum lykkjum. Oddurinn mjókkar aflíðandi fram og bláoddurinn er rúnnaður þannig að það er auðvelt að prjóna 2-3 lykkjur saman og oddurinn klýfur ekki garnið. Snúran er glær úr næloni og samskeytin snurðulaus.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar. Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm,  4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm. Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm.  
  • Höfundur: Trine Frank Påskesen / Knit by Trine P.
    Útgefandi: Turbine (2017) Harðspjalda | 144 bls. Tungumál: Danska Þyngd: 710 g
    NORDIC - DANSK BØRNESTRIK er full af uppskriftum fyrir börn í norrænum stíl með fallegum smáatriðum og áhugaverðum formum. Í bókinni eru uppskriftir fyrir stráka og stelpur frá 0-6 ára. Einföld snið með fjölbreyttri prjóntækni. Hönnuðurinn leikur sér með mismunandi áferð í prjóni. Uppskriftirnar henta bæði þeim sem hafa litla reynslu í prjóni sem og þeim reynslumeiri.
    Höfundurinn Trine Frank Påskesen, en hannar undir nafninu Knit by Trine P.
  • Verkefnatöskuna frá COCOKNITS er hægt að nota eins og ílát eða körfu sem stendur vel á borði eða sem tösku ef bætt er við leðurhöldum sem eru seldar sér. Efni: Sterkur pappír sem þolir þvott og eldist vel. Stærð: 15cm á dýpt  x 29cm breidd x 16,5cm hæð. Inniheldur: Þrír ytri vasa, níu innri vasa. Meðferð: Þolir þvott. Sjá neðar. Gott til að halda skipulagi á prjónadótinu sínu. Hægt að nota eitt og sér eða setja inn í aðra tösku til að hafa allt á sínum stað. Prjónaverkefnið rúmast í miðhólfinu, og fylgihlutirnir og uppskriftin í hliðarvösunum. Pláss fyrir vatnsflösku, gleraugu, penna, hleðslusnúrur, lykla og annað sem þér dettur í hug að hafa með. Höldur: Göt fyrir leðurhöldur til staðar ef vill. ATH. þær þarf að kaupa sér!
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höldur á Caddy verkefnatöskuna frá COCOKNITS eru úr leðri og auðvelt að festa á þar til gerð göt. Ekkert mál að fjarlægja ef taskan er þvegin.  
  • Efni: Sterkur pappír sem hægt er að þvo. Notkun:
    • Skipuleggið öll áhöldin sem þarf fyrir hvert verkefni
    • Kemst inn í prjónatösku, bakpoka eða körfu
    • Lokið nær yfir alla vasana þó það sé fullt
    • Vefjið bómullarsnúru utan um veskið og loks töluna
    • Teygið í sundur til að láta standa á borði
    • Takið vasana með smáhlutunum úr til að komast auðveldlega að þeim
    Til að fá góð ráð og hugmyndir um hvernig hægt er að nota veskið; smellið hér: "A LOOK INSIDE THE PROJECT WALLET"
    Innihald:
    • Verkefnaveski með 11 vösum, vaxborin snúra úr bómull og tala úr corozo (resin unnið úr vistvænu efni).
    • 3 vasar sem hægt er að taka úr.
    ATH. Aðrir fylgihlutir á mynd eru seldir sér.
  • Efni: Sterkur pappír sem hægt er að þvo. Innihald:
    • Þrjár tegundir af seglum til að festa pappíra og áhöld.
    • Fjórir kringlóttir seglar húðaðir með umhverfisvænu efni úr jurtaríkinu (ekkert plast notað).
    • Tveir litlir, kringlóttir seglar.
    • Þrír sterkir, rétthyrndir seglar.
    • Poki með snúru sem heldur utan um allt saman.
    Stærð: 28 cm x 23 cm (samanbrotið). ATH. Aðrir fylgihlutir á mynd eru seldir sér.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur: Shannon Roudhán and Jason Bowlsby Útgefandi: C&T Publishing (2026)
    Linspjalda með gormi | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 525 g | Mál: 203 x 254

    Mending Handbook eftir Shannon Roudhán and Jason Bowlsby

    50 mismunandi útsaumsspor sem henta vel til þess að gera við og lífga upp á fötin í fataskápnum þínum!  
  • Höfundur: Diana Li Fitzgerald Útgefandi: C&T Publishing (2026)
    Linspjalda | 144 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 510 g | Mál: 254 x 203

    Patchwork Sashiko eftir Diana Li Fitzgerald

    Transform Your Scraps // 14 Slow-stitched projects
    Blanda af hefðbundnum handsaumi útfært í nýja aðferð. Mismunandi verkefni, bæði töskur, fylgihlutir og heimilismunir.  
  • Höfundur: Shannon Leigh Roudhán and Jason Bowlsby Útgefandi: C&T Publishing (2025)
    Linspjalda með gormi | 127 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 300 g | Mál: 133 x 229

    Stitching Sashiko eftir Shannon Leigh Roudhán and Jason Bowlsby

    Visual Guide to Decorative Japanese Embroidery & Mending with 40+ Stitch Patterns
    Handhæg og meðfærðileg bók með yfir 40 sashiko sporum.
  • Höfundur: Kazuko Aoki Útgefandi: Shambhala Publications Inc (2015)
    Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 340 g | Mál: 211 x 258 x 6 mm

    The Embroidered Garden : Stitching through the Seasons of a Flower Garden

    Dásamlega falleg útsaumsbók eftir japanska höfundinn Kazuko Aoki. Það sést að áhugasviðið nær yfir garðyrkju jafnt sem útsaum. Kazuko Aoki yfirfærir fegurðina úr garðinum yfir í útsauminn á einstakan hátt. Fjörtíu mynstur endurspegla blómagarðinn og líka býflugurnar og fiðrildin. Teikningarnar sýna verkefnin vel og fyrir þá sem þurfa þá er aðferðirnar líka útskýrðar vel. Útsauminn er svo hægt að útfæra í barmnælur, bókakápur, nálapúða og poka.
  • Höfundur: Anna Johanna
    Útgefandi:  Quadrille Publishing (2022)
    Mjúkspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 760 g | Mál: ‎215 x 270 x 21 mm
    Strands of Joy inniheldur 20 fjölbreyttar uppskriftir, þ.á.m. heilar og opnar peysur og flottan kjól, húfu og krakkapeysu. Allar uppskriftirnar gera ráð fyrir að prjónað sé ofan frá og í hring.  Fitjaðu upp á tvíbandaprjónaðri flík, láttu hugann finna ró á meðan þú tekst á við verkefni sem þarfnast meiri einbeitingar. Anna Johanna er prjónhönnuður frá Muurame í mið Finnlandi. Hún er þekkt fyrir rómantískar flíkur og leggur áherslu á smáatriðin, áferð og liti.  Hún er tölfræðingur en hefur frá 2020 eingöngu unnið við prjónhönnun. Strands of Joy (á finnsku Onnensäikeitä) er fyrsta bókin hennar. Innihald: 20 prjónaverkefni með tvíbandaprjóni (10 peysur, 7 jakkapeysur, 1 kjóll, 1 húfa, 1 krakkapeysa). Uppskriftirnar fyrir fullorðins peysur koma í 9 - 12 stærðum. ATH. Þessi bók kom upprunalega út hjá LAINE sem harðspjaldabók en er hér í mjúkspjaldaútgáfu frá bresku forlagi.
  • Klemmur til að festa saman brúnir á prjónastykkjum sem á að sauma saman. Núna án plasts! Vörurnar frá Cocoknits eru umhverfisvænar. Klemmurnar eru búnar til úr sama náttúrueyðanlega efninu og málböndin og eru í linen (lín) lit. 12 klemmur í poka.
  • Þessar sveigjanlegu segulklemmur (2 í pakka) eru einföld leið til að geyma alls konar áhöld á sínum stað. Segullinn sem er í sitt hvorum endanum loða hvor við annan eða við alla stálfleti. Notkun: Festið penna við  SEGULBRETTIÐ eða VERKEFNAMÖPPUNA, skipuleggðu hringprjónasnúrur, festið UMFERÐATELJARA á uppskriftina, hafið prjónamerki við höndina eða hafið stjórn á hleðslusnúrunni. Það kemur á óvart hve nytsamlegar segulklemmurnar eru. Innihald:
    • Sveigjanlegar klemmur með seglum í sitt hvorum enda
    • Mál:
      • 9 cm x 2 cm
    Valkostir:
    • Tvær segulklemmur
    • Litaval:
      • Colorful
        • Ein í lit Wild Rose (bleikt) og ein í lit Duck Egg (ljósblágrænt)
      • Neutral
        • Ein í lit Storm (grátt) og ein í lit Linen (fölgrátt)
      • Earth Tones
        • Ein í lit Clay (leirbrúnt) og ein í Mustard Seed (sinnepsgult)
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur: Sharon Boggon Útgefandi: C&T Publishing (2023)
    Mjúkspjalda | 64 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 55 g | Mál: ‎102 x 152 mm 
    Í þessu hefti er farið yfir öll grundvallaratrið í crazy quilting. Inniheldur upplýsingar um hvernig á að sauma bútana saman, stungur og skreytingar og fleira.
  • Höfundur: Becky Goldsmith Útgefandi: C&T Publishing (2025)
    Mjúkspjalda | 64 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 65 g | Mál: ‎102 x 152 mm 
    Í þessu hefti er farið yfir öll grundvallaratrið í english paper piecing. Inniheldur upplýsingar um hvernig á að sauma bútana saman, stungur og skreytingar og fleira.
  • Höfundur: Patty Murphy Útgefandi: C&T Publishing (2023)
    Mjúkspjalda | 48 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 55 g | Mál: ‎102 x 152 mm 
    Handhægt smárit um handsaumstækni fyrir þau sem eru byrjendur eða lengra komin í bútasaumi. Fjallað er um hvernig á að ná fullkomnum samskeytum og fleira.
  • Maker’s Buddy Case eða smáhlutabudda. Nýjasta útgáfan af þessum buddum er með enn sterkari segli í lokinu. Þannig haldast smáhlutir eins og prjónamerki, nálar o.fl. á sínum stað. Stærð: 12,7 x 8,9 x 5 cm
    Smáhlutabuddan er tóm, þið sjáið um að fylla hana af fylgihlutum.
    Hannað fyrir skapandi einstaklinga heima eða á ferðinni. Sjá einnig Hook & Needle skipulagsmöppuna og Maker's hringprjónatöskuna sem er í stíl og kemur í sömu litum. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • FATABÓT; sjálflímandi, nælon

    Price range: 695kr. through 1.095kr.
    Sjálflímandi fatabót sem hentar á útivistarfatnað, regnfatnað, hlífðarfatnað o.þ.h. Stærð 10 x 20 cm. Hægt að klippa til í þá stærð sem þarf.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Málböndin eru úr umhverfisvænu efni (ekki plast) og koma í sex mismunandi litum: Clay (rauðbrúnt), Linen (beinhvítt), Storm (grátt), Sea Glass (blágrænt), Mustard Seed (gult) og Wild Rose (bleikt). Björtu litirnir tryggja að þú finnir alltaf málbandið í prjónatöskunni. Jarðalritirnir setja fallegan svip á áhöldin þín. Málbandið sjálft er úr málmi með cm/mm og tommum og lengdin er 2 m. Cocoknits leggur áherslu á að nota umhverfisvæn efni í framleiðsluna og forðast plast eins og hægt er. Skelin utan um málbandið er úr PLA sem er 100% náttúruuppleysanlegt efni úr jurtaríkinu.  Með því að sleppa lásnum tókst að gera málbandið án plasts og þannig eru líka minni líkur á því að það bili. Hvert málband kemur í endurnýtanlegum poka úr líni. Mál: 6,5 x 5 x 1,3 cm, málbandið er 2 m langt.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Olnbogabætur úr mjúku rúskinni svo peysurnar og/eða jakkarnir endist lengur. Til í nokkrum litum. Með gataröð meðfram brún til að auðvelda saumaskapinn. Koma tvær saman í pakkningu. Það er upplagt að nota Laine St. Pierre stoppugarnið til að festa bæturnar.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Útsaumsgarn úr 100% bómull. Hentar vel fyrir japanskar útsaumsaðferðir eins og Sashiko og Boro en einnig allan annan útsaum. Þráðurinn er 6-faldur, en saumað er honum óklofnum. Hvert spor mun sjást vel og hentar því fyrir stórgerðari mynstur. Hvert spjald inniheldur 30 m. Garnið kemur á spjöldum sem auðveldar að geyma garnið og hafa skipulag á litunum. Margir litir í boði. Framleiðsluland: Japan
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Útsaumsgarn úr 100% bómull. Hentar vel fyrir japanskar útsaumsaðferðir eins og Sashiko og Boro en einnig allan annan útsaum. Þráðurinn er fjórfaldur, en saumað er honum óklofnum.
    Hvert spjald inniheldur 40 m.
    Garnið kemur á spjöldum sem auðveldar að geymslu og skipulag. Framleiðsluland: Japan
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • MOUCHE & FRIENDS Höfundur: Cinthia Vallet Útgefandi: Laine Publishing (2023)
    Mjúkspjalda | 216 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 605 g | Mál: 192 x 225 x 20 mm 
  • Tiny Friends: A Guide to Mosaic Embroidery Höfundur: Tomomi Mimura Útgefandi: Laine Publishing (2026)
    Mjúkspjalda | 144 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 450 g | Mál: 189 x 240 x 11 mm 
  • Uppáhalds prjónamerkin hjá mörgum, því þau eru svo létt og sveigjanleg. Hnykillinn er hnýttur úr glansandi þræði með sléttri áferð sem teygist ekki. Rennur því fyrirhafnarlaust á prjónunum. Það er hægt að velja um pakkningu með mismunandi litum eða bleikum prjónamerkjum. 6 prjónamerki í pakka.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • T-pinnar eru sterkir títiprjónar til að nota í strekkingu. Pinnarnir eru úr ryðfríu stáli sem er nauðsynlegt þegar stungið er í rök stykki. Koma í góðu boxi með 40 stykkjum.
  • SOAK 375ml er flaska sem dugar í 75+ þvotta. Hvað er Soak? Soak er nútíma þvottalögur sem er umhverfisvænn. Þvottur með Soak er þægilegur, því ekki þarf að skola. Þú leggur í bleyti, setur teskeið af Soak og lætur liggja í 20-30 mínútur. Mikilvægt að hafa vatnið ylvolgt eða kalt. Sparar tíma og vinnu við handþvott og fer vel með flíkina/prjónaverkefnið. Soak er frábær þvottalögur til nota fyrir allt sem við prjónum, heklum eða saumum. Allt annað sem er viðkvæmt s.s. fínn undirfatnaður, mjúkar peysur, ungbarnafatnaður, bútasaumsteppi, sundföt, líkamsræktarfatnaður og allt annað sem þú vilt fara sérstaklega vel með. Notkun: Leggja í bleyti og kreista. Þarf ekki að skola. Leggja flatt til þerris. Alltaf skynsamlegt að kanna hve litekta flík er áður en hún er lögð í bleyti.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Soak Flatter er úði án sterkju sem sléttir, afrafmagnar og frískar upp. Óþarfi að þvo peysuna (eða flíkina) eins oft ef Flatter er til staðar. Mild umhverfisvæn formúla. Flatter auðveldar straujun bæði með eða án gufu. Úðað er jafnt yfir flíkina. Endurtekið ef óskað er eftir meiri stífni. Notað til að fríska upp á flíkur á milli þvotta eða til að koma í veg fyrir krumpur.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
Go to Top