Það getur verið erfitt að koma skipulagi á hringprjónana. Þeir flækjast auðveldlega og það getur tekið langan tíma að finna rétta prjóninn. Prjónahengið er svarið! Hver göng geta geymt marga prjóna í mismunandi lengdum. Böndin efst er hægt að nota til að hengja prjónahengið upp; á herðatré, á fataslá eða á hurð. Það getur verið sniðugt að hnýta böndin utan um prik eða t.d. langan prjón og hengja upp á snaga eða nagla. Neðst er vasi með rennilás til að geyma smáhluti. Tuttugu göng eru merkt með prjónastærðum og ein eru auka án merkingar.
Göngin eru merkt í þessum prjónastærðir í mm: 1,5, 1,75, 2, 2,25, 2,5, 2,75, 3, 3,25, 3,5, 3,75, 4, 4,5, 5, 5,5, 6, 6,5, 7, 8, 9, 10, 12 mm.
Stærð
Lengd: 82,5 x breidd: 25,5 cm
Hannað fyrir skapandi einstaklinga.
Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum!