1.495kr.

  • Grófleiki: Fínband / 4ply / fingering
  • Innihald: 100% alpakaull
  • Lengd/þyngd: 225m/25g
  • Prjónar:  3 – 4 mm
  • Prjónfesta: 16 – 24 lykkjur = 10 cm
  • Þvottur: Handþvottur í köldu vatni

Bjartir og fallegir litirnir í þessu garni kalla á næsta prjónaverkefni. Er ekki kominn tími á litríka peysu, húfu, sjal eða vettlinga?

Organic Brushed Alpaca frá KAOS YARN er framleitt úr 100% vistvænni (organic) alpakaull, baby alpaka og suri alpaka. Garnið er mjög mjúkt viðkomu og hentar jafnvel fyrir þau allra viðkvæmustu. Það er hægt að prjóna þetta garn á misgrófa prjóna, þétt eða gisið, eitt og sér eða sem þráð sem er lagður með öðru garni, t.d. í stað silki/móhár garns. Það er loðið og hefur mikla fyllingu.

Ullin er að mestu frá Perú og er spunnið þar hjá fjölskyldufyrirtæki með Fair Trade vottun. Garnið er litað samkvæmt evrópskum stöðlum um litun. Öll framleiðsla er umhverfisvæn og dýravæn.

Litapallettan hjá KAOS YARN er innblásin af styrkleika og karakter manneskjunnar. Finnið ykkar litríku leið til tjáningar í litaúrvalinu í garninu frá þeim. Nóg er af fallegum litum að velja úr.