• Aukanál fyrir flosnál með handfangi. MEDIUM/FINE nálin er grófari fyrir garn í fínbandsgrófleika (4ply/fingering). 6-PLY nálin er fínni fyrir útsaumsgarn (4-6 þræði af árórugarni eða sambærilegt). 3-PLY nálin sem fylgir með Flosnál með handfangi er enn fínni. Sjá nánar upplýsingar með Flosnál með handfangi.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Petite Knit | Ellen's Playset

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Petite Knit | Champagne Cardigan

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • Merchant & Mills nálar. Betweens eru hefðbundnar stuttar saumnálar sem klæðskerar nota t.d. til að sauma falda. Nú orðið eru þær mikið notaðar í bútasaumi en eru samt sem áður góðar í allan almennan handsaum. Blanda af 12 nálum í mismunandi grófleikum í glerflösku með gúmmítappa. Merchant & Mills er þekkt, breskt fyrirtæki sem leggur áherslu á að gera upplifun þeirra sem sauma skemmtilega.
  • Afsláttur!

    Anchor | METALLIC

    Original price was: 1.445kr..Current price is: 1.012kr..
    • Grófleiki: Fínband / fingering / 4ply
    • Innihald: 80% viskósi, 20% pólýester
    • Lengd/þyngd: 100m/125g
    • Prjónar/heklunál: 2 – 2,5 mm
    • Þvottur: Handþvottur 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Höfundur: Lindsey Fowler Útgefandi: Laine Publishing (2022)
    Harðspjalda | 160 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 682 g | Mál: 185 x 246 x 19 mm
    Bókin inniheldur 15 prjónauppskriftir (4 sjöl, 1 kraga, 4 sokkapör, 2 húfur, 1 peysu, 1 golftreyju, 1 grifflur, 1 teppi). Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar.
  • Höfundur:  Marie Wallin Útgefandi: Marie Wallin Designs (2022)
    Mjúkspjalda | 121 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 550 g | Mál: 215 x 280 mm
    Cumbria, sérstök bók frá Marie Wallin því þetta er í fyrsta skipti sem hún hefur peysur á herra með. Í bókinni eru 11 verkefni, þar af 3 herrapeysur, 6 dömupeysur og 2 fylgihlutir. Allar peysurnar er hægt að prjóna í hring að viðbættum klippilykkjum þar sem hliðar eða handvegsop á að vera. Í bókinni er sérstakur kafli þar sem kennt er að klippa upp peysur. Kvenstærðirnar eru S, M, L, XL, XXL, 2XL OG 3XL og passa fyrir ummál 81-86 cm, 91-97cm, 102-107cm, 112-117cm, 122-127cm, 132-137 cm og 142-147 cm. Herrastærðirnar eru XS, S, M, L, XL, XXL, 2XL og 3XL og passa fyrir ummál 97-102 cm, 102-107 cm, 107-112 cm, 112-117 cm, 117-122 cm, 122-127 cm, 127-132 cm og 132-137 cm. Hverri bók fylgir rafbók, það er kóði til að hlaða bókinni niður í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann. Þá er auðvelt að stækka mynstrin þegar prjónað er eftir þeim.
  • Englabossi Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo auðvelt sé að festa við flíkina. Stærð 2,5 x 2,5 cm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Fyrir ástina mína Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo auðvelt sé að festa merkið við flíkina. Stærð 1,2 x 5 cm Litur: Bleikt
  • Stoppunálar með góðum oddi, frábærar í fataviðgerðir. Nálagrófleiki 3/9. Nálahús fylgir með.
  • Svört teygja fyrir allan almennan saumaskap. Teygjan er flöt, 13 mm á breidd og 3 m á spjaldi.
    • Nálarnar renna vel í gegnum efni.
    • Nálarnar eru með gyllt auga sem er auðveldara að þræða.
    • Nálarnar eru úr sérstaklega hertu stáli svo þær bogna hvorki né brotna.
    • Nálaroddarnir eru beittir og henta í frjálsan útsaum, jafnvel með ullargarni því augað er stórt.
    • Nálarnar fást í ýmsum grófleikum; hærra númer = fínni nál.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír. 
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Sæt og krúttleg prjónamerki Til að merkja byrjun umferðar eða stað í umferð þar sem eitthvað á að gerast er gott að nota hringi. Hringmerkin fara utan um prjóninn og fylgja okkur í hverri umferð. 10 stk. á spjaldi.
  • Addi | HEKLUNÁL | fyrir krækjuhekl | 30 cm

    Price range: 595kr. through 995kr.
    Langar heklunálar úr málmi, 30 cm með hjarta á endanum fyrir krækjuhekl (túnesískt hekl). Athugið að fínustu heklunálarnar (2mm og 2,5mm) eru með þríhyrndum enda. Hægt að nota fyrir hvers konar hekl sem er en eru sérstaklega hannaðar fyrir krækjuheklið. Krækjuhekl er íslenskt heiti yfir það sem hefur ymst verið kallað afgangskt, rússneskt eða tyrkneskt hekl.  
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • addiCalibro er bæði prjónamál og mælistika. Létt og nytsamleg tvenna, hentar fyrir allar tegundur prjóna og heklunála. Efni: Birki krossviður
  • Höfundur: Anna Johanna
    Ùtgefandi: Laine Publishing (2024)
    Harðspjalda | 175 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 860 g | Mál: ‎212 x 277 x 21 mm
    Strands of Joy Vol. II er önnur bókin hennar  Önnu Jóhönnu sem mörg hafa beðið spennt eftir. Bókin stendur undir væntingum, full af alls konar peysum og fylgihlutum. Smellið á hlekkinn hérna fyrir neðan til að skoða sýnishorn úr bókinni. Nánar um bókina: Pattern Previews for Strands of Joy Vol. II
  • Peysan PÁLÍNA er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin. Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.
  • Ullarskafa til að hreinsa ló af ullarflíkum sem hnökra. Stundum hnökra peysur, sérstaklega ef þær eru prjónaðar úr mjúkri, snúðlinri ull. Oft eru þetta laus hár að ganga úr bandinu og peysan þannig að hreinsa sig. En stundum hnökra flíkur á álagssvæðum. Hver sem ástæðan er er gott að eiga áhald til að ná lónni af án þess að skemma peysuna eða þynna hana. Gleener er búið að margsanna notagildi sitt. Það fylgja þrír kambar með sem auðvelt er að skipta um, auk fatabursta. Fínn kambur fyrir fíngerðustu peysurnar, jafnvel úr silki eða silkiblöndu, miðlungs grófleiki sem hentar á flestar peysur og grófasti sem væri góður kambur fyrir lopapeysur eða sambærilegt garn. Þetta er smærri útgáfan af Gleener, en það fæst einnig Gleener til heimilisnota með stærra handfangi. Kambarnir eru jafnbreiðir, en ferðaútgáfan er minni um sig, án handfangs. Það er geymsluhólf fyrir kambana inni í kambinum. Poki fylgir til að geyma allt saman. Gleener er ekki bara fyrir peysur heldur einnig húsgögn, teppi og aðrar flíkur. Fataburstinn sem fylgir er upplagður til að ná dýrahárum og öðru kuski af. Engar rafhlöður. Gott fyrir umhverfið og hjálpar þér að láta flíkur og annan textíl endast lengur.  
  • Sjálflímandi fatabót með endurskini sem henta á útivistarfatnað, regnfatnað, hlífðarfatnað o.þ.h. Stærð 10 x 20 cm. Hægt að klippa til í þá stærð sem þarf.
    • Sokkar í kvenstærð fyrir NORO Silk Garden Sock  garnið sem fæst bæði einlitt og kaflalitað.
    • Þessir sokkar eru prjónaðir frá sokklegg að tá.
    • Það þarf eina 100 g hnotu af NORO Silk Garden Sock garninu í sokkapar. Ef notað er kaflalitað garn og sokkarnir eiga að vera eins þarf 200 g (þá er afgangur í annað sokkapar).
    • Prjónastærð er 2,75 mm eða sú stærð sem þarf til að ná réttri prjónfestu.
    UPPSKRIFTIN ER Á ÍSLENSKU ATH. Ef þið kaupið NORO Silk Garden Sock garn í sokkana fylgir uppskriftin með FRÍTT. Veljið garnið, setjið í körfu og setjið í skilaboðagluggann hvaða uppskrift þið veljið með (fimm mismunandi í boði). Uppskriftin verður send í tölvupósti um leið og varan er afgreidd. NORO Sokkauppskrift: FLOTLYKKJUR (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: HLYNUR (prjónaðir frá tá) NORO Sokkauppskrift: LAUF (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: SNÚRA (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: STUÐLAR & GÖT (prjónaðir frá sokklegg)  
    • Grófleiki:  Grófband / Aran
    • Innihald:  86% ull, 20% pólýamíd, 4% viskós
    • Lengd/þyngd:  100 g/200 m
    • Prjónar:  4 - 5 mm
    • Prjónfesta:  18 lykkjur og 26 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Ullarþvottakerfi við 40°C
     
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • ÖRYGGISAUGU Plast Stærð 8 mm Litur: Svört 1 par = 195 kr. Tvö augu og tvær festingar.
  • Buddan er saumuð á stramma með krosssaumi með útsaumsgarni úr 100% ull.  Það eru fylgja margir litir af útsaumsgarni með. Hönnuðurinn leggur til að þið veljið litina af handahófi þegar saumað er. Þá verður þetta óvissuferð, en kemur alltaf fallega út því litirnir passa allir vel saman. Rennilás fylgir og liturinn á honum er mismunandi, en alltaf í stíl við garnið. Innihald: Strammi, jafanál, útsaumsgarn úr ull, rennilás, leðursnúra, mynsturteikning, efni fyrir frágang og leiðbeiningar á dönsku. Hönnuður: Søren Nielsen Stærð: 15 cm x 22 cm Þéttleiki: 44 spor / 10 cm.
Go to Top