5.995kr.

Höfundur: Lindsey Fowler

Útgefandi: Laine Publishing (2022)

Harðspjalda | 160 bls.

Tungumál: Enska

Þyngd: 682 g | Mál: 185 x 246 x 19 mm

Bókin inniheldur 15 prjónauppskriftir (4 sjöl, 1 kraga, 4 sokkapör, 2 húfur, 1 peysu, 1 golftreyju, 1 grifflur, 1 teppi).
Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar.

Aðeins 2 eftir á lager

Í bók Lindsey Fowler Salt & Timber gætir áhrifa frá Kyrrahafsströndinni í norðvestur BNA.  Bókin er mjög fallega myndskreytt með 15 þægilegum flíkum sem auðvelt er að prjóna.  Uppskriftirnar eru af sokkum, sjölum, peysum, húfum, vettlingum og meira að segja teppi. Hönnuðurinn spáir mikið í smáatriðin og hér er tækifæri til að nýt allar umfram birgðirnar af garni. Einnig er auðvelt að aðlaga uppskriftirnar að þörfum þess sem prjónar.

Lindsey Fowler býr í norðaustur Ohio í BNA með æskuástinni sinni, tvíburabörnum, hundi og ketti. Sem prjónhönnuður finnst henni áhugavert að vinna með áferðarmynstur og að setja hefðbundið prjón í nýjan búning. Hennar áhrifavaldar eru náttúran, arkitektúr og hefðbundnar hannyrðir. Salt & Timber er fyrsta bókin hennar.

Sjá fleiri myndir úr bókinni hér:

Pattern previews for Salt & Timber

Title

Go to Top