-
Symfonie DREAMZ prjónaoddarnir eru úr birki, hver grófleiki í sérstökum lit og fást í tveimur lengdum. Þessir eru 10 cm eða styttri og passa fyrir stystu snúrurnar til að mynda 40 cm langan hringprjón fyrir húfu- og ermaprjón eða hálsmál á peysu. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum. Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er. Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Léttband / DK
- Innihald: 57% alpaka, 43% bómull
- Lengd/þyngd: 120m/25g
- Prjónar: 3,5-4 mm
- Prjónfesta: 23 lykkjur og 31 umferð = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°
-
- Grófleiki: Þykkband / aran / worsted
- Innihald: 90% ull og 10% viskósi
- Lengd/þyngd: 100m/50g
- Prjónar: 4,5 - 5 mm
- Prjónfesta: 18 lykkjur = 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Afsláttur!
- Grófleiki: Þykkband / worsted / aran
- Innihald: 50% alpaka og 50% ull
- Lengd/þyngd: 200m/100g
- Prjónar: 5 - 6 mm
- Prjónfesta: 15-18 lykkjur og 20 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Afsláttur!
- Grófleiki: Léttband / DK
- Innihald: 76% bómull, 15% jakuxaull, 9% nælon
- Lengd/þyngd: 135m/50g
- Prjónar: 4 mm
- Prjónfesta: 22 lykkjur og 30 umferðir = 10 x 10cm
- Þvottur: Ullarvagga 30°
-
ADDI Crasy Trio eru þríprjónar eða þrír bognir prjónar með stuttri snúru í miðjunni. Þeir eru 21cm langir og hver prjónn er með einum beittum oddi og einum bljúgum. Þannig er hægt að velja hvorum oddinum er prjónað með. Þeir henta í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermaprjón á barnapeysum. Fást í 2 - 5 mm. Fást einnig 26cm langir. -
Sæbjörg er sokkar sem eru þægilegir í prjóni. Hællinn er hefðbundinn bandhæll, sem er líka þekktur undir nafninu Halldóruhæll. Hér er þó útgáfa þar sem hælstallurinn er með garðaprjónskanti sem minnkar líkur á að það myndist göt þegar hælstallslykkjurnar eru prjónaðar upp. Þá er bæði hælstallurinn og hæltungan með styrkingu eða prjónað með óprjónuðum og prjónuðum lykkjum á víxl til að gera hælinn þéttari og mýkri.Gægt er að hafa stroffið á sokkleggnum hærra og brjóta það tvöfalt, ykkar er valið. Þægindin við að stroffið nái niður að hæl er að þá er svo auðvelt að bregða sér í og úr sokkunum.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni, smellið á hana til að hlaða henni niður. Það er einnig hægt að smella á slóðina sem er að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti.
