3.195kr.

Isager Jensen

  • Grófleiki: Léttband / DK
  • Innihald: 100% ull
  • Lengd/þyngd: 250m/100g
  • Prjónfesta 10 x 10 cm:
  • Jensen: 3 mm prjónar: 22L / 28 umf
  • Jensen + Alpaca 1: 3,5 mm prjónar = 19 L / 24 umf
  • Jensen + Alpaca 2: 4,0 mm prjónar = 17 L / 24 umf
  • Jensen + Silk Mohair: 5 mm prjónar = 16 L / 20 umf
  • Þvottur: Handþvottur við 30°C

Uppskriftir á Ravelry þar sem Isager Jensen er notað

Jensen garn frá Isager hét upphaflega ÅLJ, nefnt eftir prjónahönnuðinum Åse Lund Jensen. Á sjöunda áratugnum seldi hún handprjónaðar peysur úr þungu sænsku garni. Þyngdin gerði flíkurnar dýrar í sendingu utan Danmerkur og varð til þess að hún hóf samstarf við danska spunaverksmiðjuna Henrichsens Uldspinderi í Skive. Úr því samstarfi varð til létt þriggja þráða garn, ÅLJ, kynnt í náttúrulegum litum sem mynda enn grunninn að Jensen Yarn, Spinni og Tvinni.

Hvít ull í garninu kemur frá Nýja-Sjálandi, en grá og brún ull fyrir svokallaða s-liti kemur frá Gotlands-sauðfé í Evrópu. Birgirinn í Nýja-Sjálandi er hluti af Wool Integrity-áætluninni sem tryggir rekjanleika, dýravelferð og sjálfbæra nýtingu. Lesa má nánar um verkefnið hér: woolintegrity.com.

Jensen garn er efna­litað, en litavalið byggir á náttúrulegum litum sem Åse Lund Jensen valdi upphaflega. Litirnir 0, 0s, 2s og 3s eru ólitaðir og óbleiktir. Aðrir litir eru litaðir með Oekotex 100-litum frá Evrópu, en þar sem spunaverksmiðjan í Skive er ekki vottuð má garnið ekki bera sjálfa merkinguna.

Þriggja þráða uppbyggingin gerir garnið jafn og vel spunnið, sem fær áferðarmynstur til að njóta sín sérstaklega vel. Það er mjög endingargott, slitnar fallega með notkun og minnir þar á Tvinni. Við mælum með garninu bæði í flíkur til innivistar og útivistar.