-
ADDI Click SOS snúrur, 3/pk; 60cm, 80cm og 100cm. ADDI SOS snúrur eru eins og aðrar snúrur, nema það er lítið gat beggja vegna þar sem samskeytin eru. Götin eru til að þræða fíngert garn eða þráð í gegnum og hnýta. Síðan er umferðin prjónuð eins og venjulega. Þráðurinn er losaður og hnýttur saman. Ef villa uppgötvast er snilld að geta sleppt lykkjunum af prjóninum, rakið upp og lykkjurnar sitja öruggar á þræðinum. Þetta þarf svo að endurtaka reglulega svo ekki þurfi að rekja mjög langt niður í hvert sinn, t.d. á 10-20 umferða fresti. Það er upplagt að nota þessa aðferð við alls konar gataprjón og klukkuprjón sem getur verið erfitt að rekja upp. -
Langar heklunálar úr málmi, 30 cm með hjarta á endanum fyrir krækjuhekl (túnesískt hekl). Athugið að fínustu heklunálarnar (2mm og 2,5mm) eru með þríhyrndum enda. Hægt að nota fyrir hvers konar hekl sem er en eru sérstaklega hannaðar fyrir krækjuheklið. Krækjuhekl er íslenskt heiti yfir það sem hefur ymst verið kallað afgangskt, rússneskt eða tyrkneskt hekl. -
Getur gagnlegt prjónahjálpartæki líka verið skartgripur? Já, nýi hringurinn úr 925 sterling silfri frá addi, sem fæst í þremur stærðum, sameinar hönnun og garnleiðara í einni vöru. Hringinn er ekki aðeins hægt að nota við tvíbanda prjón, heldur er einnig frábær garnleiðari í einlitu prjóni. Hægt er að breyta spennu garnsins eftir hvernig það er þrætt. Skartgripur framleiddur í Altena, Þýskalandi. Auðvelt að aðlaga að stærð. Hönnun eftir Sylvie Rasch. Stærðir: S = ummál 52mm M = ummál 54mm L = ummál 56mm -
Þetta fylgihlutaveski er ómissandi fyrir alla prjónara og heklara. Hagnýt, lítil taska með aukahlutum sem passar örugglega í hvaða verkefnatösku sem er. Innihald: Textíltaska með þrýstihnappi og augnholu, málband (allt að 150 cm), gullin einhyrningsskæri (10 cm), 5 lykkjukrækjur (2 gull, 3 silfur), 1 frágangsnál. -
ADDI Click Lace Short hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace), en prjónarnir sjálfir eru styttri svo hægt sé að nota til að mynda 40cm eða lengri hringprjóna. Það fylgja með 5 addi snúrur, liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts. ADDI Click prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er. Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum, bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar. Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað. -
Buddan er saumuð á stramma með krosssaumi með útsaumsgarni úr 100% ull. Það eru fylgja margir litir af útsaumsgarni með. Hönnuðurinn leggur til að þið veljið litina af handahófi þegar saumað er. Þá verður þetta óvissuferð, en kemur alltaf fallega út því litirnir passa allir vel saman. Rennilás fylgir og liturinn á honum er mismunandi, en alltaf í stíl við garnið. Innihald: Strammi, jafanál, útsaumsgarn úr ull, rennilás, leðursnúra, mynsturteikning, efni fyrir frágang og leiðbeiningar á dönsku. Hönnuður: Søren Nielsen Stærð: 15 cm x 22 cm Þéttleiki: 44 spor / 10 cm. -

- Nálarnar renna vel í gegnum efni.
- Nálarnar eru með gyllt auga sem er auðveldara að þræða.
- Nálarnar eru úr sérstaklega hertu stáli svo þær bogna hvorki né brotna.
- Nálaroddarnir eru bljúgir og hentar í úttalinn útsaum eða frágang í prjóni eða annarri garnvinnu.
- Nálarnar fást í ýmsum grófleikum; hærra númer = fínni nál.
-
Það er auðvelt og öruggt að skipta um skurðarblöð í Clover skurðarhnífunum. Hvert skurðarblað kemur í sérstökum umbúðum til að koma í veg fyrir óþarfa snertingu. Einnig er hægt að fá 5 blöð í pakka.CLOVER 18mm skurðarblað í skurðarhníf. 2 stk. í pakka.Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa. -
Efni: Sterkur pappír sem hægt er að þvo. Innihald: Fjögur hólf, þríhyrningslaga sem lokast eins og umslag með smellum. Þrjár marglitar teygjur sem er hægt að nota á ýmsa vegu. Utan um hvern hólk er beinhvít teygja. Stærð: Ytri mál eru 16,5 cm x 6,3 cm x 6,3 cm. Innri mál hvers hólks eru 14,5 cm x 4,5cm x 2,5 cm. Hugmyndin á bak við hönnunina er að halda skipulagi á smáhlutunum. Setjið prjónamerkin og annað sem fylgir ykkur í hólfin, takið öll með eða bara eitt með því sem skiptir máli hverju sinni, því þau eru fest saman með smellum. ATH. Innihald sem sést á mynd fylgir ekki með. -
- Lykkjustopparar fyrir prjóna 2mm - 10mm.
- 6 stærðir; 4 stk. af hverri stærð = 24 lykkjustopparar.
- Framleitt úr umhverfisvænu efni.
- Notkun: Setjið stopparann alla leið upp á prjóninn til að halda við lykkjurnar. Hægt að nota á sokkaprjóna og hringprjóna. Setjið á hringprjóna eða snúru af samsettum prjónum að halda lykkjunum öruggum á meðan peysan er mátuð.
-
Segularmband með ól úr sílikóni. Segulflöturinn er úr burstuðu stáli. Málband á innri hlið armbandsins. Passar á alla. Stærð: Armband 25,4 cm x 1,9 cm, segull 3,8 cm x 3,8 cm. Á segulinn er hægt að setja t.d. Cocoknits teljarann, prjónamerki, lítil skæri eða þráðklippur, hjálparprjóna úr málmi og annað sem festist við segul. Hentar fyrir þá sem prjóna, hekla, sauma, hárgreiðslufólk, fluguveiðifólk og þá sem ráðast í viðgerðir um helgar og vilja hafa nagla, skrúfur og annað nálægt. -
Höfundur: Meiju K.P. Útgefandi: Laine Publishing (2021)Harðspjalda | 280 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 1.300 g | Mál: 205 x 270 x 27 mmÞessi dásamlega fallega bók frá Meiju P endurspeglar metnaðarfulla prjónhönnun. Allar uppskriftirnar eru með útprjóni; köðlum eða öðru til að gera áferðina skemmtilega í einlitum flíkum. Bókin inniheldur 22 uppskriftir (9 peysur, 5 golftreyjur, 1 slá, 4 sjöl, 3 húfur). Sígild prjónhönnun! Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar. -
Káputeikning: Tytti Laitakari Útgefandi: Cozy Publishing (2025) Harðspjalda | 160 bls. (auðar)Þyngd: 372 g | Mál: 15,5 x 21,5 mmDagbók með dásamlega fallegri kápumynd. Auðar síður sem bíða allra þinna fallegu hugmynda, verkefna og skipulags. Eða bana minnispunka... Enginn texti = Auðar síður. Á bókarkápu er setningin: LET'S DO WHAT WE LOVE AND DO A LOT OF IT. -
Heklunálaveski til að hafa gott skipulag á heklunálunum. Hvert hólf er merkt heklunálastærðinni. Tvö ómerkt aukahólf.
Á myndinni sést heklunálaveskið brotið ó tvennt en þegar búið er að fylla það af heklunálum er þægilegt að rúlla því upp og festa með snúruteygjunni. Stærð: Lokað: 15 x 18,5 cm Opið: 47 x 25,5 cm Dýpt vasa: 10 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga heima eða á ferðinni. Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af heklunálum! -
Það getur verið erfitt að koma skipulagi á hringprjónana. Þeir flækjast auðveldlega og það getur tekið langan tíma að finna rétta prjóninn. Prjónahengið er svarið! Hver göng geta geymt marga prjóna í mismunandi lengdum. Böndin efst er hægt að nota til að hengja prjónahengið upp; á herðatré, á fataslá eða á hurð. Það getur verið sniðugt að hnýta böndin utan um prik eða t.d. langan prjón og hengja upp á snaga eða nagla. Neðst er vasi með rennilás til að geyma smáhluti. Tuttugu göng eru merkt með prjónastærðum og ein eru auka án merkingar. Göngin eru merkt í þessum prjónastærðir í mm: 1,5, 1,75, 2, 2,25, 2,5, 2,75, 3, 3,25, 3,5, 3,75, 4, 4,5, 5, 5,5, 6, 6,5, 7, 8, 9, 10, 12 mm.Stærð Lengd: 82,5 x breidd: 25,5 cm Hannað fyrir skapandi einstaklinga. Linen línan - Ytra byrðið og vasarnir eru úr líni (hör) og innra byrðið (röndótta) úr bómullarefni. Til að loka veskinu er þykk snúruteygja sem smeygt er utan um stóra kókostölu. Teygjan tryggir að hægt er að loka veskinu þó að það sé troðfullt af prjónum! -
Þetta er rúmgóð hliðartaska með góðu handfangi. Vandlega handunnin taska þar sem hugað er að öllum smáatriðum. Nútímaleg og hefðbundin í senn, taska sem hefur mikið notagildi og fer aldrei úr tísku! Hugsuð fyrir prjónaverkefnið eða hvað sem er. Góð handtaska fyrir hversdagslífið. Hönnuð fyrir skapandi einstaklinga á ferðinni. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar tösku. Hver taska er handunnin og tímalaus hönnun. -
Eco Vita Hemp útsaumsefni frá DMC Hampur er náttúrulegt vefjarefni úr jurtaríkinu og hentar vel í útsaumsefni. Áferðin líkist líni/hör. Fáanlegt í fjórum litum og hver bútur er 50,8 x 61 cm. Þetta er þéttofið efni og hentar vel frjálsan útsaum og flos. Frábært að sauma út með DMC Eco Vita organic útsaumsgarninu. -
Eco Vita 12 Embroidery Projects
12 Útsaumsverkefni fyrir sokka.Allur útsaumur gerir ráð fyrir að notað sé DMC Eco Vita organic útsaumsgarnið. -
Höfundur: Kazuko Aoki Útgefandi: Roost Books (2020)Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 340 g | Mál: 191 x 210 mm Fíflar og fjólur, sveppir og haustlauf, náttúran er kveikja höfundar að fallegum, fíngerðum útsaumsmyndum. Teikningarnar eru fallegar og bjóða upp á enn fallegri útsaum. Bókin er ríkulega myndskreyttm með góður leiðbeiningum og vinnulýsingum. Frábær fyrir alla sem hafa áhuga á frjálsum útsaumi. Kazuko Aoki er vinsæll útsaumari í Japan. Hún notar náttúruna til að inspírara sig, bæði garðinn heima og jurtir sem verða á vegi hennar á gönguferðum. Eftir listaskólanám í Japan stundaði hún nám í textíl í Svíþjóð. Hún er höfundur margra útsaumsbóka. -
Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þessi merki eru fyrir prjónara sem elska hunda og ketti! Pakkningin inniheldur 8 merki, 4 með hundum og 4 með köttum. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með 10mm svörtum málmhringjum. Hugmyndin kemur frá gömlum teikningum sem sjást á umbúðunum. FIREFLY er kanadískt vörumerki.Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!
-
Dásamlega fallegar öskjur undir smáhluti, t.d. prjónamerki, lítil skæri, nálar o.fl. Myndin á lokinu er sett á öskjuna á handverksstæði FIREFLY. Gljáandi yfirborðið er úr resín sem endist lengi. FIREFLY vörurnar eru handunnar í Kanada.Tvær stærðir í boði:
🐰 Lítil: Lengd 6 cm x breidd 3,4 cm x dýpt 1,2 cm
🐰 Stór: Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cmFullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti!
Athugið að hægt er að fá segulplötu í botninn á stærri öskjunni!

🐰 Stór: Lengd 9,5 cm x breidd 6,2 cm x dýpt 2 cmFullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna, hekla, sauma og aðra sem kunna að meta fallega fylgihluti.
Athugið að hægt er að fá segulplötu í botninn á stærri öskjunni!
-
Sérhönnuð prjónamerki af FIREFLY fyrir fagurkera. Þessi merki eru fyrir prjónara sem elska garn! Pakkningin inniheldur 8 merki, 2 hvít, 2 bleik, 2 græn og 2 svört. Búin til úr málmi með emelaraðri skreytingu með 10mm messinghringjum. FIREFLY er kanadískt vörumerki.Fullkomin gjöf fyrir þau sem prjóna og kunna að meta fallega fylgihluti!
-
JÓLASOKKAR í dömu og herrastærð fyrir 7 BRÆÐUR sokkagarnið.Þessa uppskrift er hægt að sækja FRÍTT sem pdf skjal og hún er á íslensku. -
Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum. Sparkefli með 500m.