2.370kr.

ADDI Click SOS snúrur, 3/pk; 60cm, 80cm og 100cm.

ADDI SOS snúrur eru eins og aðrar snúrur, nema það er lítið gat beggja vegna þar sem samskeytin eru. Götin eru til að þræða fíngert garn eða þráð í gegnum og hnýta. Síðan er umferðin prjónuð eins og venjulega. Þráðurinn er losaður og hnýttur saman. Ef villa uppgötvast er snilld að geta sleppt lykkjunum af prjóninum, rakið upp og lykkjurnar sitja öruggar á þræðinum. Þetta þarf svo að endurtaka reglulega svo ekki þurfi að rekja mjög langt niður í hvert sinn, t.d. á 10-20 umferða fresti. Það er upplagt að nota þessa aðferð við alls konar gataprjón og klukkuprjón sem getur verið erfitt að rekja upp.

 

Er á lager