5.995kr.

Höfundur: Meiju K.P.

Útgefandi: Laine Publishing (2021)

Harðspjalda | 280 bls.

Tungumál: Enska

Þyngd: 1.300 g | Mál: 205 x 270 x 27 mm

Þessi dásamlega fallega bók frá Meiju P endurspeglar metnaðarfulla prjónhönnun. Allar uppskriftirnar eru með útprjóni; köðlum eða öðru til að gera áferðina skemmtilega í einlitum flíkum.

Bókin inniheldur 22 uppskriftir (9 peysur, 5 golftreyjur, 1 slá, 4 sjöl, 3 húfur).

Sígild prjónhönnun!

Uppskriftirnar innihalda bæði mynsturteikningar og skriflegar vinnulýsingar.

Er á lager

Meiju K-P er þekkt fyrir kaðlaprjóna, gataprjón og annars konar prjón sem lyftir lykkjunum upp af yfirborðinu  í alls konar útfærslum. Hún hefur samt í huga að það sé skemmtilegt að prjóna útprjónsmynstrin. Meiju finnst það skemmtileg áskorun að blanda saman krefjandi prjóntækni og ánægjulegri upplifun prjónarans.

Contrasts – Textured Knitting er fyrsta bókin hennar Meiju og inniheldur 22 uppskriftir; peysur, heilar og opnar, trefla, húfur, allt í fíngerðum kvenlegum stíl.  Hönnunin miðar við að flíkurnar séu þægilegar, klæði fólk vel og hafi mikið notagildi. Flestar peysanna eru prjónaðar frá hálsmáli sem gerir aðlögun að réttri stærð betri.

Meiju býr í Helsinki, Finnlandi með eiginmanni sínum og þremur sonum. Jafnvel sem táningur, þá prjónaði hún aldrei eftir uppskriftum, vildi helst skapa sínar eigin peysur. Seinna varð prjónhönnun hennar ástríðufulla áhugamál og loks atvinna. Hún vonar að bókin kveiki nýjar hugmyndir hjá prjónurum, byrjendum jafnt sem lengra komnum.

Hér getið þið skoðað fleiri myndir úr bókinni.

Pattern previews for Contrasts

Title

Go to Top