4.995kr.

Segularmband með ól úr sílikóni. Segulflöturinn er úr burstuðu stáli. Málband á innri hlið armbandsins. Passar á alla.

Stærð: Armband 25,4 cm x 1,9 cm, segull 3,8 cm x 3,8 cm.

Á segulinn er hægt að setja t.d. Cocoknits teljarann, prjónamerki, lítil skæri eða þráðklippur, hjálparprjóna úr málmi og annað sem festist við segul.

Hentar fyrir þá sem prjóna, hekla, sauma, hárgreiðslufólk, fluguveiðifólk og þá sem ráðast í viðgerðir um helgar og vilja hafa nagla, skrúfur og annað nálægt.

Frá Julie Weisenberger stofnanda Cocoknits:

Einn aðalkosturinn við prjón er að þú getur tekið það með þér hvert sem er! Og um leið týnt smáhlutunum þínum út um allt! Ég vildi finna leið til að hafa stjórn á öllu prjónadótinu mínu á ferðalögum  – þannig datt mér í hug Maker’s Keep segularmbandið. Það festist um úlnliðinn án fyrirhafnar og passar sannarlega á alla. Þú getur notað það sem armband eða haft það í prjónatöskunni þinni til að halda öllu á sínum stað. Þú getur meira að segja teygt úr því og ýtt seglinum yfir á annan endann og lagt það yfir uppskrift til að týna ekki línunni.

Fyrir utan prjón, þá nota ég mitt þegar ég sauma (frábært til að geyma títuprjóna!) og við höfum heyrt frá viðskiptavinum að þeir noti armbandið í vinnunni til að geyma bréfaklemmur, hárspennur (sérstaklega gott í brúðarhárgreiðslum!), naglar og skrúfur eru á sínum stað þegar unnið er að viðgerðum, og jafnvel í fluguveiði!