6.995kr.

Efni: Sterkur pappír sem hægt er að þvo.

Innihald: Fjögur hólf, þríhyrningslaga sem lokast eins og umslag með smellum. Þrjár marglitar teygjur sem er hægt að nota á ýmsa vegu. Utan um hvern hólk er beinhvít teygja.

Stærð: Ytri mál eru 16,5 cm x 6,3 cm x 6,3 cm. Innri mál hvers hólks eru 14,5 cm x 4,5cm x 2,5 cm.

Hugmyndin á bak við hönnunina er að halda skipulagi á smáhlutunum. Setjið prjónamerkin og annað sem fylgir ykkur í hólfin, takið öll með eða bara eitt með því sem skiptir máli hverju sinni, því þau eru fest saman með smellum.

ATH. Innihald sem sést á mynd fylgir ekki með.

Frá Julie Weisenberger stofnanda COCOKNITS:

Ég hef séð áhöld og annað prjónatengt geymt í alls konar pokum, plastboxum, pennaveskjum og fleiru. Ekkert af þessu hentaði mér eða hafði nægt notagildi. Ég vildi eitthvað sem hefði nógu mörg hólf svo ég gæti haft gott skipulag á hlutunum. Gæti opnað það og haft yfirsýn yfir allt sem væri þar, en færi samt vel í töskunni minni. Ég byrjaði að brjóta pappír, eins og origami, þar til ég fann einföld, löng umslög með þríhyrndri lögun. Fjórir svona þríhyrndir hólkar mynda ferhyrning, og svo er hægt að rúlla þeim upp! Ég áttaði mig á því að ef ég festi hvert hólf saman með smellum gæti ég tekið alla rúlluna með mér eða smellt þeim í sundur og tekið aðeins með það sem ég þyrfti á að halda hverju sinni.  Eins og alltaf vildi ég að hægt væri að þvo hirsluna og að efnið væri endingargott, svo við notuðum efni úr kraftpappír, sem mýkist við hvern þvott.