-
Afsláttur!
- Grófleiki: Léttband / DK
- Innihald: 75% ull, 25% pólíamíd
- Lengd/þyngd: 100 g/225 m
- Prjónar: 3 - 4 mm
- Prjónfesta: 22 lykkjur og 28 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Ullarþvottakerfi við 40°C
-
Petite Knit | Sophie Hood
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Sophie Scarf eða Sophie Shawl. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Afsláttur!
- Grófleiki: Fisband / Lace
- Innihald: 70% móhár (geitafiða), 30% silki
- Lengd/þyngd: 210m/25g
- Prjónar: 3 - 5 mm
- Prjónfesta: 18-25 lykkjur og 23-34 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
ADDI Lace hringprjónarnir með góða oddinum! Þeir eru úr málmi með löngum oddi sem hentar mjög vel fyrir gataprjón, en líka allt annað prjón. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Vanir prjónarar sem prjóna hratt finna vel muninn á að nota þessa prjóna því lykkjurnar renna svo vel á prjóninum og þá tefur þig ekkert! Það er ekki skrítið að þessir prjónar eru kallaðir Turbo í BNA. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. -
CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn er mátulega beittur svo auðvelt er að stinga honum í gegnum lykkjuna án þess að kljúfa garnið. Áferðin á krókhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra. Handfangið er úr mjúku efni (elastomer) sem er þægilegt viðkomu og situr vel í hendi og þá er sama hvernig haldið er á heklunálinni. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Fínustu heklunálarnar frá 0,60mm til 1,75mm eru með krók úr stáli og það fylgir hetta með til að verja krókinn. Hægt er að kaupa Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm. -
Vatnsuppleysanlegt flíselín. Hentar vel í allan útsaum, bæði í höndum og á saumavél. Hentar vel í útsaum á prjón. Hægt að teikna mótíf á með blýanti eða penna og sauma svo út. Svo er flíselínið skolað af. 25 cm lengdareining = 450 kr. Metraverð 1.800 kr. Hver lengdareining er 25 cm x 90 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. -
Petite Knit | Sophie Shawl
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Sophie Hood eða Sophie Scarf. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Stoppugarn og/eða útsaumsgarn. Garnið er úr 50% ull og 50% pólíamíd og er þannig nógu sterkt í sokka- og peysuviðgerðir en hentar einnig í útsaum. Magn: 10 m á spjaldi (40 m ef þráðurinn er notaður einfaldur). Þráðurinn er fjórfaldur og auðvelt að kljúfa eftir grófleika þess sem á að sauma. Margir litir í boði.