1.395kr.2.195kr.

CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun.

Krókurinn er mátulega beittur svo auðvelt er að stinga honum í gegnum lykkjuna án þess að kljúfa garnið.  Áferðin á krókhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra.

Handfangið er úr mjúku efni (elastomer) sem er þægilegt viðkomu og situr vel í hendi og þá er sama hvernig haldið er á heklunálinni. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust.

Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit.

Fínustu heklunálarnar frá 0,60mm til 1,75mm eru með krók úr stáli og það fylgir hetta með til að verja krókinn.

Hægt er að kaupa Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm.