1.695kr.

  • Grófleiki: Fisband / Lace
  • Innihald: 70% móhár (geitafiða), 30% silki
  • Lengd/þyngd: 210m/25g
  • Prjónar: 3 – 5 mm
  • Prjónfesta: 18-25 lykkjur og 23-34 umferðir = 10 x 10 cm
  • Þvottur: Handþvottur 30°C

NUVOLA er silki/móhár garn með loðna áferð. Hver 25 g hnota er með 210 m þannig að garnið er drjúgt. Hægt að prjóna peysur og sjöl með því einu og sér, en það er vinsælt að leggja það með öðru garni eða lopa til að styrkja, mýkja og fá grófari prjónfestu. Þá verða peysurnar léttari og fljótprjónaðar.

Nuvola þýðir ský á ítölsku og passar vel við svo fislétt garn. Garnið er framleitt á Ítalíu fyrir Storkinn og merkt okkur. Við höfum góða reynslu af þessu garni og bjóðum marga fallega liti.