• Iron-On Transfer Pencil er blýantur er notaður til að yfirfæra mynstur á efni með straujárni. Teiknið með blýantinum á bökunarpappír, leggið yfir efnið, strauið og mynstrið færist yfir á efnið eða aðra fleti sem á að merkja. Hægt að nota hvert mynstur 2-3 sinnum. Notkun: (1) Setjið bökunarpappír á mynstrið sem á að nota. (2) Dragið mynstrið í gegn með Iron-On Transfer blýantinum. (3) Setjið mynstrið ofan á efnið og strauið yfir og þannig yfirfærist mynstrið á efnið.
  • Góður skurðarhnífur með 18 mm blaði fyrir alla námkvæmisvinnu í bútasaumi. Skurðarhnífar eru ómissandi áhald fyrir bútasaumara. Hnífurinn situr vel í hendi og það er auðvelt að skera fljótt og vel með honum. • Hentar bæði rétthentum og örvhentum. Hlífinni er einfaldlega snúið eftir því hvor höndin er notuð. • Sker vel sama hvernig hnífnum er beitt; lóðrétt eða á ská, því blaðhlífin hefur nægilegt svigrúm en blaðið sjálft nær mátulega langt út fyrir brúnina til að gæta öryggis. • Gripið á handfanginu er þægilegt með stömum en mjúkum snertiflötum. • Hægt að stilla hve hratt skurðarblaðið rennur. Ef skrúfan er hert hægist á blaðinu sem auðveldar skurð á þykkari efnum.
  • CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn fremst er hannaður með það í huga að auðvelt sé að stinga í gegn og sækja nýja lykkju. Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra og reynir minna á hendurnar. Handfang er úr mjúku efni sem er þægilegt viðkomu, rennur ekki og er hæfilega breitt og situr vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Í þessu setti eru 9 heklunálar í stærðum 2mm, 2,5mm, 3mm, 3,5mm, 4mm,  4,5mm, 5mm, 5,5mm og 6mm. Hægt er að kaupa stakar Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm.  
  • Clover HEKLUNÁL Amour

    1.395kr.2.195kr.
    CLOVER Amour heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn er mátulega beittur svo auðvelt er að stinga honum í gegnum lykkjuna án þess að kljúfa garnið.  Áferðin á krókhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra. Handfangið er úr mjúku efni (elastomer) sem er þægilegt viðkomu og situr vel í hendi og þá er sama hvernig haldið er á heklunálinni. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar í hekli og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hvert númer af heklunál er í sérstökum lit. Fínustu heklunálarnar frá 0,60mm til 1,75mm eru með krók úr stáli og það fylgir hetta með til að verja krókinn. Hægt er að kaupa Amour heklunálar í stærðum 0,6mm til 15mm.
  • CLOVER 18mm skurðarblað í skurðarhníf. 5 stk. í pakka.
    Skurðarblöðin eru í stöðluðum stærðum þannig að það á að vera hægt að nota þau í allar gerðir skurðarhnífa.
    Það er auðvelt og öruggt að skipta um skurðarblöð í Clover skurðarhnífunum. Hvert skurðarblað kemur í sérstökum umbúðum til að koma í veg fyrir óþarfa snertingu.
  • Þægilegur sprettuhnífur til að skera á saumspor þegar rekja þarf upp eða spretta upp saumum. Ómissandi áhald, sérstaklega í vélsaumi. Hlíf fylgir.
  • Saumaðu út á einfaldan hátt með því að þrýsta nálinni í gegnum strekkt efni. Strekktu efnið á útsaumshring og teiknaðu með nálinni! Innihald
    • Flosnál með handfangi
    • Hringur, jafanál og þræðitvinni
    Notkun
    1. Þrýstu nálinni í gegnum vel strekkt efni og dragðu upp.
    2. Renndu nálinni eftir efninu og endurtaktu.
    Garn
    • Léttband (medium eða DK) til stórband (bulky) garn.
    Heppileg efni
    • Grófur panamajafi (monk cloth) fæst í Storkinum.
     
  • Þægileg og fljótleg leið til að búa til dúska. 2 stk. í pakka. Ummál dúsks: 65 mm & 85 mm. 4 stærðir í boði XS, S, L og XL.
  • Dúkkunálar sem eru nógu langar til að stinga í gegnum saumuð, prjónuð eða hekluð leikföng. Tvær nálar í pakka, lengri og styttri.
  • Jafanálar (oddlausar nálar) frágang í prjóni eða hekli. Bogni oddurinn gerir saumaskapinn auðveldari, sérstaklega þegar stykki eru saumuð saman eða t.d. í ítalskri affellingu. Tvær nálar í pakka, fínni og grófari.
  • Trendy eru hefðbundin málbönd en í björtum litum. Þýsk gæðaframleiðsla. Málbandið er úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er hvít á lituðum grunni. Mælir í cm og tommum. Málbandið mælir 150 cm í cm og tommum.
  • Rollfix málböndin eru þýsk gæðaframleiðsla og vinsælustu málböndin hjá okkur. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Skelin er úr sterku ABS plasti og fást með alls konar skreytingum. Málbandið sjálft er líka úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á hvítum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 150 cm.
  • Rollfix málböndin eru þýsk gæðaframleiðsla og vinsælustu málböndin hjá okkur. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Skelin er úr sterku ABS plasti og fást með alls konar skreytingum. Málbandið sjálft er líka úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á hvítum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 150 cm.
  • Ritstjórn: LAINE Knitting Magazine Ùtgefandi: Quadrille Publishung (2023)
    Mjúkspjalda | 256 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 950 g | Mál: 210 x 270 x 22 mm 
  • Höfundur: Love Productions
    Útgefandi: Quadrille Publishing (2023) Harðspjalda | 128 bls. Stærð: 160 x 210 x 20 mm Tungumál: Enska
    Þyngd: 550 g Sjónvarpsþátturinn The Great British Sewing Bee er raunveruleikaþáttur sem sýndur hefur verið á BBC 2. Þar keppast 12 snjallir áhugasaumarar um að gera fallegar flíkur og sína dómurunum Esme Young og Patrick Grant. Þessi bók er gerð af þáttaframleiðendunum og sýnir snjalla og góða tækni sem mikilvægt er að tileinka sér í fatasaumi. Farið er yfir mismunandi þykktir á efnum, fallegan frágang og ýmsar skreytingar á fatnaði.
  • Höfundur: Yumiko Higuchi Útgefandi: Roost Books (2024)
    Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 300 g | Mál: 191 x 241 x 6 mm

    Stitching Through The Seasons eftir Yumiko Higuchi

    Dásamlega falleg útsaumsbók eftir japanska höfundinn Yumiko Higuchi. Blóm og gróður, ávextir, fólk fiskar og ýmislegt fleira er að finna í bókinni. Bókinni er skipt upp í kafla eftir mánuðunum og hefur hver mánuður sitt þema. Í bókinni eru einnig góðar leiðbeiningar með myndum með sporunum sem nota skal í útsauminn.
  • Höfundur: Kotomi Hayashi
    Ùtgefandi: Tuttle Publishing (2023)
    Harðspjalda | 96 bls. Þyngd: 780 g |  Mál: ‎216 x 279 x 16 mm 

    55 Fantastic Japanese Knitting Stitches

    • Falleg mynstur sem eru eins báðum megin.
    • Mynstur sem setja þrívídd í prjónið
    • Nýlegar útfærslur á klassísku prjóni, svo sem köðlum og öðru áferðarprjóni
    • Mynstur og lykkjur í óvanalegum litasamsetningum sem gefa endalausa möguleika fyrir sköpunargleðina
     
  • Höfundur: Niina Laitinen
    Útgefandi: Search Press (2023)
    Mjúkspjalda | 176 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 700 g  Stærð:  204 x 260 mm
  • Höfundur: Anne Le Brocq
    Ùtgefandi: David & Charles (2023)
    Mjúkspjalda | 144 bls. Þyngd: 585 g |  Mál: ‎210 x 273 x 10 mm 

    The Art of Landscape Knitting - Beginner Knitting Patterns For Unique Blankets

  • Höfundur: Daniella Taylor & Venice Shone Útgefandi: David & Charles (2023)
    Mjúkspjalda | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 520 g | Mál: ‎210 x 273 x 10 mm

    Aðgengilegar og byrjendavænar uppskriftir af þessum sætu dýravinum. Í bókinni eru 6 dýr og yfir 50 fylgihlutir fyrir þau.

  • Höfundur: Weichien Chan Útgefandi: Quadrille Publishing 2024 Linspjalda | 160 bls. Tungumál: Enska
    Þyngd: 620 g | Mál: 252 x 200 x 16 mm

    arctic knits - jumpers, socks,  hats and mittens - Weichen Chan

    Falleg bók með vönduðum tvíbandaprjóns- uppskriftum að peysum, sokkum, húfum og vettlingum.
  • Höfundur: Louise Crowther Útgefandi: David & Charles (2022)
    Mjúkspjalda | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 522 g | Mál: ‎210 x 273 x 12,7 mm

    Lærðu að prjóna þessi sætu dýr sem verða sjálfsagt uppáhalds leikföng barnanna. Metsöluhöfundurinn Louise Crowther er hér með enn eina flotta bók með prjónuðum dýrum. Hún hefur sinn sérstaka stíl og hvert dýr fær sinn fatnað að auki. Það eru samtals 12 prjónuð dýr í bókinni, hvert þeirra með sín einkenni og sinn fatastíl. Öll dýrin hafa í grunninn sömu stærð af búk og því er hægt að nota fötin á fleiri en eitt dýr. Veldu þitt uppáhaldsdýr og klæðnað á þær. Fullkomin gjöf fyrir vini og vandamenn.

    Hér getið þið skoðað myndir úr bókinni: Knitted Animal Friends
  • Peysan FOLD er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin. Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.
  • Peysan JÚLÍ er klassísk peysa eftir Helgu Thoroddsen. Notuð er tengiaðferð til að prjóna hálsmál, axlir og efri hluta erma. Allt prjónað, ekkert saumað saman. Peysur með þessu sniðu smellpassa og eru mjög klæðilegar.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðin birtist einnig í tölvupóstinum sem þið fáið eftir kaupin. Hægt er að hlaða uppskriftinni í tölvuna, spjaldtölvuna eða símann allt að fimm sinnum.

Title

Go to Top