1.295kr.

Einrúm er ekki aðeins með garnlínu heldur einnig fullt af flottum uppskriftum. Þær eru margar hverjar hannaðar af Kristínu Brynju sjálfri en einnig öðrum hönnuðum. Upphafsstafir hönnuðarins eru merki uppskriftarinnar.

RIBBON SWEATER  – KGB 12

Hönnuður: Kristín Brynja

Garn: S (M) L – 250 g (250 g) 250 g E-band.

Prjónar: 3,5 mm hringprjónar og sokkaprjónar

Stærðir: S (M) L

Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á íslensku

Aðeins 2 eftir á lager

HÖNNUÐUR: KRISTÍN BRYNJA

Ég er sérlega hrifin af jakkapeysum. Þessi peysa, sem hlotið hefur nafnið KBG 12, á rætur að rekja til KBG 09 peysunnar. Samskonar mynsturlykkja undirstrikar einstaka hluta peysunnar. Mér finnst skemmtilegast að prjóna þegar taktur-inn sem prjónið myndar er þægilegur; hæfileg blanda af áskorunum og endurtekningum. Mynsturlykkjan myndar skemmtilegan takt þegar peysan er prjónuð.

BAND:Uppskriftin er hönnuð fyrir einrúm E-band.
Peysan á myndinni er prjónuð í lit E 1010 ólivín

S (M) L – 250 g (250 g) 250 g E-band

PRJÓNAR:Hringprjónn 3,5 mm
Sokkaprjónar 3,5 mm

STÆRÐIR: S (M) LHálf yfirvídd: 41 (45) 48 cm
Sídd frá handvegi, með stroffi: 40 (42) 44 cm
Ermalengd, með stroffi: 44 (46) 48 cm

Title

Go to Top