Samprjón
Þriðjudagar 4 skipti
24. mars og 7., 14. og 21. apríl
kl. 17:30 – 19:30
Í þetta skipti prjónum við peysu númer 03, FRIGG úr 52 Weeks of Sweaters. Peysan er prjónað ofan frá og niður með 8 löskum sem gefa henni sérstakt yfirbragð og einkenna peysuna.
Uppskriftina er ekki hægt að fá staka svo þið kaupið bókina með skráningu eða ef þið hafið þegar keypt bókina getið þið tekið með ykkar eigin.
Innifalið
Bókin 52 Weeks of Sweaters (afhent þegar að námskeiðið byrjar eða við garnkaup)
Ef þið eigið bókina þá getið þið valið að sleppa henni þegar þið skráið ykkur á samprjónið og greiðið aðeins staðfestingargjald
Kaffi/te og meðlæti
Ýmisleg prjóntækni er notuð fyrir utan uppfit og útaukningar.
Um að gera að koma í Storkinn og skoða möguleikana. Hugmyndin með samprjóni er að koma saman og deila og læra hvor af annarri og fá um leið leiðsögn frá reyndum prjónara.
Umsjón með samprjóninu hefur Magna Rún frá Storkinum. Hún verður búin að rýna uppskriftirnar og aðstoðar þá sem þurfa hjálp til að komast í gang.
Þær sem skrá sig á samprjónið fá 15% afslátt af garni í peysuna.
Til að taka þátt þarf að greiða 2.500 kr. skráningargjald. sem greiðist við skráningu. Einnig þarf að kaupa garnið í peysuna í Storkinum tímalega fyrir samprjónið og skrá sig hér neðst á síðunni með því að velja vöruna og gefa upp nafn, netfang og símanúmer.
Skráningargjald er bindandi og fæst ekki endurgreitt.
Tillögur af garni í peysuna:
Jensen frá ISAGER
Prjónað með:
- Silki Mohair frá ISAGER
- Tvinni frá ISAGER



