11.000kr.

Örnámskeið – eitt skipti

Mánudagur

kl. 17:30 – 20:30

9. febrúar

Góður frágangur er lykilatriði í prjóni. Þar skiptir máli að jaðrar/brúnir/kantar séu fallegir. Þetta getur verið jaðar á sjali, trefli, listum á hnepptri peysu eða öðrum prjónaverkefnum.

Á þessu örnámskeiði förum við yfir nokkrar aðferðir og prjónum þær í eina prufu sem verður svo hægt að nota síðar til að velja réttan jaðar sem hentar í hvert verkefni.

Við tökum fyrir nokkrar aðferðir til að fá fallega jaðra/brúnir/kanta, sem eiga við ýmis verkefni, m.a. eru hinn sívinsæla snúrukant (e. i-cord).

Innifalið

Garn í prufuna, kaffi/te og meðlæti og vinnulýsingar fyrir allar aðferðirnar sem verða prjónaðar.

Komið með eða kaupið á staðnum 60 eða 80 cm hringprjón, 3,5 mm (4mm ef þið prjónið fast).

Upplagt námskeið fyrir þau sem vilja bæta við sig nýrri prjóntækni.

Aðeins 2 eftir á lager

Vöruflokkar: