2.500kr.

SAMPRJÓN – ATH. BREYTTUR TÍMI!

Miðvikudagar 3 skipti

27. maí, 3. og 10. júní

kl. 17:30 – 19:30

Skoða úfærslur frá öðrum sem hafa prjónað peysuna

Innifalið
Aðstoð við að velja rétt garn, finna út rétta stærð, hefja prjónaskapinn og læra þá prjóntækni sem þarf.

15% afsláttur af garni í peysuna.

Kaffi/te og meðlæti

Um samprjónið frá Altheu:

Nú er komið að því, ég er að fara að gifta mig! Í tilefni að því ætla ég að prjóna mér sparilega brúðarpeysu og langar að bjóða ykkur í samprjón.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður, bolurinn er prjónaður í sléttprjóni, fram og til baka með útaukningum. Ermarnar eru svo prjónaðar í hring með fallegu mynstri. Svo er heklaður fallegur kantur í kringum V-hálsmálið.

Hægt er að klæðast peysunni með V-hálsmálið að framan eða að aftan.

Samprjónið hentar frekar vönum prjónurum sem langar í spari- eða brúðarpeysu.

Uppskriftin er á ensku, þýsku eða frönsku. 

Það er notað tvöfalt silki/mohair garn í peysuna, en auðvitað hægt að skoða aðra möguleika.

Umsjón með samprjóninu hefur Althea Wetter frá Storkinum. Hún er verður búin að rýna uppskriftina og aðstoðar þau sem þurfa hjálp til að komast í gang.

Þær sem skrá sig á samprjónið fá 15% afslátt af garni í peysuna.

Til að taka þátt þarf að greiða 2.500 kr. skráningargjald sem greiðist við skráningu. Einnig þarf að kaupa garnið í peysuna í Storkinum tímalega fyrir samprjónið og skrá sig hér neðst á síðunni með því að velja vöruna og gefa upp nafn, netfang og símanúmer.

Skráningargjald er bindandi og fæst ekki endurgreitt nema ef samprjónið fellur niður.

Nánar um uppskriftina á Ravelry HÉR:

Er á lager

Vöruflokkar: