24.900kr.
Veljið hvernig peysu þið viljið prjóna svo að uppskriftin verði tilbúin fyrir ykkur.
Það er val um:
ANKER SWEATER MY SIZE – kvenstærðir – peysa með síðum ermum
ANKER SWEATER – barnastærðir – 3 mán til 12 ára – peysa
ANKER TEE – kvenstærðir – peysa með stuttum ermum – fíngerðara garn
4 skipti kl. 17:30 – 19:30
Þriðjudagar 28. apríl, 5., 12. og 19. maí
Þetta námskeið er kjörið tækifæri fyrir þá prjónara sem vilja ná tökum á að prjóna peysu ofan frá í barna- eða fullorðinsstærð. Allar stærðir í boði í þessari uppskrift frá Petiteknit.
Þið lærið að:
Fitja upp, prjóna í hring, prjóna slétt og brugðið, auka út, deila lykkjum í ermar og bol, taka úr og fella af.
Það er langbest að koma í búðina áður en námskeiðið hefst til að velja garn. Þá nýtist tíminn á námskeiðinu miklu betur. Við aðstoðum ykkur við að velja og finna út rétt garnmagn eftir stærð peysunnar sem þið viljið prjóna.
Þið fáið uppskriftina á íslensku.
Þið fáið 15% afslátt af garninu, prjónum og raunar öllu sem þið þurfið á að halda á meðan á námskeiðinu stendur.
Innifalið: Uppskrift, rafræn og útprentað eintak, prjónamerki, lykkjustoppari og kaffi/te og meðlæti.
Magna Rún kennir á þessu námskeiði.
Greiðsluskilmálar vegna námskeiðsgjalda
Ef ekki næst lágmarksþátttaka og námskeið er fellt niður endurgreiðum við öll námsskeiðsgjöld að fullu.
Ef skráður þátttakandi á námskeiði forfallast og kemst ekki á námskeiðið þá þarf tilkynning að berast Storkinum með tölvupósti á netfangið [email protected] eigi síðar en 48 klukkustundum (tveimur sólarhringum) áður en námskeið hefst. Ef tilkynning berst síðar áskilur Storkurinn sér rétt til að innheimta 10% af námskeiðsgjaldi vegna umsýslu.
-
Afsláttur!
Rowan | MODE #2
2.995kr.Original price was: 2.995kr..2.396kr.Current price is: 2.396kr.. -
NORDIC DANSK BØRNESTRIK
5.495kr. -
Afsláttur!
TOUCHING ELEGANCE
3.995kr.Original price was: 3.995kr..2.797kr.Current price is: 2.797kr.. -
Afsláttur!
Rowan MODE #8
2.995kr.Original price was: 2.995kr..2.396kr.Current price is: 2.396kr.. -
Afsláttur!
HOPE
3.995kr.Original price was: 3.995kr..3.196kr.Current price is: 3.196kr.. -
OBSERVATIONS
4.995kr.