18.000kr.
F U L L B Ó K A Ð
Örnámskeið – eitt skipti
Fimmtudagur 7. maí
kl. 17:30 – 20:30
Útsaumur er mjög skemmtileg iðja, ekki síst þegar hægt er að nota hann til að skreyta flíkur.
Á þessu örnámskeiði ætlum við að velja mynstur úr bókinni EMBROIDERY ON KNITS eftir Judit Gummlich.
Við munum fyrst og fremst nota alls konar ullargarn og sauma út í prjónaða prufu sem þið prjónið heima og komið með á námskeiðið (fyrirmæli um prufuna send í tölvupósti tímanlega fyrir námskeiðsbyrjun).
Byrjum á nokkrum grunnsporum eins og varplegg, aftursting, lykkjuspori, fræhnútum 0g bætum fleiri sporum við eftir þörfum.
Innifalið
Bókin Embroidery on Knits (afhent þegar að námskeiðið byrjar)
(ef þið eigið bókina þá getið þið valið að sleppa henni þegar þið skráið ykkur á námskeiðið)
Útprentað mynstur úr bókinni til að draga í gegn
Flíselín sem hverfur þegar að það er bleytt
Útsaumsgarn í prufuna
Útsaumsnálar
Kaffi/te og meðlæti
Hafa með eða kaupa á staðnum:
Útsaumshringur (15-18 cm)
Skæri
Upplagt námskeið fyrir þau sem vilja læra eitthvað nýtt eða rifja upp útsaum.
Kennari: Guðrún Hannele