• MATRYOSHKA STARTER KIT er útsaumspakki fyrir lengra komna í útsaumi. Pakkinn heitir grunnsett af því það er allt í honum til að byrja að sauma. Notuð eru fjölbreytt frjáls útsaumsspor. Öll útsaumsmynstur frá Kiriki eru handþrykkt með björtum, vatnsbaseruðum bleklitum á efni. Það er því ekki þörf á að yfirfæra mynstur á efni. Innihald:
    • Útsaumshringur Ø 15 cm
    • Gyllt storkaskæri
    • Bók með lýsingu á útsaumssporunum
    • Silkiprentað bómullarefni
    • Áprentað efni fyrir bak
    • Útsaumsnál nr. 9
    • Útsaumsgarn frá DMC; árórugarn
    • Fylling
    • Góð vinnulýsing
    • Litmynd af útsaumaðri dúkku
    • Áprentaðar umbúðir; upplagt sem gjöf!
    Mælt með fyrir 12 ára og eldri. Þetta er pakkning með efni til að sauma sjálf/ur sína eigin uglu. Allt sem þarf fylgir með. Tilbúin ugla er 11 cm á hæð.
  • HORNED OWL STARTER KIT er útsaumspakki fyrir byrjendur og lengra komna í útsaumi. Pakkinn heitir byrjunarpakki af því það er allt í honum til að byrja að sauma. Sporin eru fyrir þá sem hafa einhverja reynslu í útsaumi. Notuð eru einföld frjáls útsaumsspor og aðeins flóknari. Öll útsaumsmynstur frá Kiriki eru handþrykkt með björtum, vatnsbaseruðum bleklitum á efni. Það er því ekki þörf á að yfirfæra mynstur á efni. Innihald:
    • Útsaumshringur Ø 15 cm
    • Gyllt storkaskæri
    • Bók með lýsingu á útsaumssporunum
    • Silkiprentað bómullarefni
    • Áprentað efni fyrir bak
    • Útsaumsnál nr. 9
    • Útsaumsgarn frá DMC; árórugarn
    • Fylling
    • Góð vinnulýsing
    • Litmynd af útsaumaðri uglu
    • Áprentaðar umbúðir; upplagt sem gjöf!
    Mælt með fyrir 12 ára og eldri. Þetta er pakkning með efni til að sauma sjálf/ur sína eigin uglu. Allt sem þarf fylgir með. Tilbúin ugla er 11 cm á hæð.
  • FRIDA útsaumspúði

    Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (petit point á ensku). Hönnuður: Magie Hollingworth Stærð: 38 cm x 36 cm Þéttleiki: 48 spor / 12 cm.
  • MIKADO MAIDS útsaumspúði

    Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma perlu- eða körfusporið sem notað er (nánast eins og hálft krosssaumspor). Hönnuður: Raymond Honeymoon Stærð: 48 cm x 46 cm Þéttleiki: 48 spor / 10 cm.
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem notað er (líkist hálfu krosssaumsspori). Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 41 cm x 41 cm Þéttleiki: 48 spor / 10 cm.
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið (nánast eins og hálfur krossaumur) sem notað er. Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 38 cm x 38 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.  
  • Púðinn er saumaður á ámálaðan stramma með ullargarni. Nál fylgir og leiðbeiningar um hvernig á að sauma körfusporið sem notað er (líkist háfu krosssaumsspori). Hönnuður: Kaffe Fassett Stærð: 41 cm x 41 cm Þéttleiki: 40 spor / 10 cm.
  • Knit Pro Bamboo HRINGPRJÓNAR

    Price range: 1.295kr. through 1.595kr.
    KNIT PRO hringprjónar úr bambus sem er deigari en birki og þola því meira átak. Prjónaoddarnir eru léttir og mjúkir viðkomu og samskeyti snúru og prjónaodds slétt. Hægt er að fá sokkaprjóna úr bambus, bæði stutta og langa. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Knit Pro Nova HRINGPRJÓNAR

    Price range: 627kr. through 717kr.
    KNIT PRO Nova hringprjónar eru rennisléttir málmprjóðar og þola því meira átak. Prjónaoddarnir eru léttir og mjúkir viðkomu og samskeyti snúru og prjónaodds slétt. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Knit Pro Cubics HRINGPRJÓNAR

    Price range: 1.795kr. through 1.895kr.
    KNIT PRO Cubics hringprjónar eru úr birki og eru ferkantaðir. Áferðin er slétt og mjúk en kantarnir hindra að lykkjurnar renni of auðveldlega á prjónunum. Þess vegna er líklegra að prjónfestan verði þéttari með Cubics prjónum en hefðbundnum prjónum í sama grófleika. Þessir prjónar hafa fengið góð meðmæli frá þeim sem prjóna laust og eiga erfitt með að halda þétt um prjónana. Hægt er að fá Cubics sokkaprjóna, bæði stutta og langa. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Löngu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 15 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Knit Pro | CUBICS J’adore | sokkaprjónar | 15 cm

    Price range: 1.695kr. through 2.195kr.
    Stuttu Cubics sokkaprjónarnir frá Knit Pro eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermar á ungbarnapeysur. Cubics prjónar eru ferkantaðir prjónar úr birki, hafa slétta og mjúka áferð og oddarnir eru góðir. Cubics prjónar hentar þeim sem prjóna laust eða halda laust um prjónana og þeim sem vilja prjóna þéttar. Lögunin á prjónunum veldur því að það er þægilegt að halda á þeim, gripið þarf ekki að vera eins þétt og þeir renna síður í höndunum. Prjónastærðin er mæld með sama hætti og ávölu, venjulegu prjónarnir. Fást einnig 20 cm langir. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Sterkar lykkjunælur úr áli. Þrjár stærðir í þremur litum.
  • Áherslulímband til að líma undir línu í uppskrift, bók eða blaði. Auðvelt að losa af, skemmir ekki blaðsíðuna og hægt að nota aftur og aftur. Þessar ræmur eru mjórri en hefðbundið límband og því góðar til að setja undir línu. Stærð: 0,5 x 14 mm 20 x 8 ræmur á spjaldi
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Skrautbætur til ásaums á fatnað, peysur, töskur og hvað sem ykkur dettur í hug. Hver bót er 28 cm á hæð. Japanskar vörur en framleiddar í Suður Kóreu.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • INNOX  er snilldarlausn fyrir okkur öll sem prjónum og saumum út. Þetta eru 20 x 10 cm miðar í áberandi litum. Hver miði nær því þvert yfir flestar bækur, blöð og skjái. Snilldin felst í því að það er ekkert lím! Miðarnir loða við allt, pappír, gler, tré, steypu og málm. Hægt er að taka þá af, færa til og endurnota aftur og aftur. Hægt er að skrifa á miðana ef vill. Fyrir okkur sem erum í hannyrðum þá eru þetta gott hjálpartæki en þetta nýtist líka mörgum öðrum sem eru að skipuleggja verkefni og vilja setja marga miða á vegg, skrifa á þá og færa til eftir þörfum. Stærð: 20 x 10 mm. 100 miðar í hefti. 4 litir í boði: bleikt, appelsínugult, grænt, blátt.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Handunnið hnotutré úr birki til að geyma garnhnotuna á meðan prjónað er. Engar garnflækjur þegar svona áhald er notað. Garnhnotan helst á sínum stað og þráðspennan verður hæfileg. Gúmmítappar á botninum sem tryggja grip.
  • Þessar snudduklemmur eru úr málmi og eru ætlaðar til að festa band eða borða við sem síðan tengist við snudduna sjálfa. Þessar klemmur eru líka fínar á axlabönd. Veljið lit hér fyrir neðan.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Prjónamál úr tré. Mælir 17 prjónastærðir frá 2 mm upp í 15 mm. Einnig mælistika t.d. til að mæla prjónfestuna..
  • Handunnin garn- eða hnotuvinda úr tré sem getur undið allt að 450 g af garni í fínbands (4ply/fingering) grófleika. Garnvindan er alveg hljóðlaus og hún er hönnuð þannig að snertifletir eru fáir og því er gengur vindingin ljúft og snuðrulaust fyrir sig. Gúmmítappar eru á botninum svo vindan renni ekki til eða rispi borð. Borðfesting fylgir. Fyrirhafnarminna að vinda garn í hnotu í þessari vindu því hver hringur sem snúið er eins og þrír á minni garnvindum. Hægt að kaupa auka gúmmíreim ef á þarf að halda.
  • Aukareim fyrir garn- eða hnotuvinduna frá LYKKE.
  • Hesputré úr við. Allir hlutar eru viðar nema skrúfan sem er úr plasti en þá eru minni líkur á að festingin forskrúfist. Hægt að stækka og minnka umfangið eftir lengd hespunnar. Borðfesting er einföld. Er í stíl við NATURAL garnvinduna.      
  • Prjónamál, ílangt úr plasi. Mælir prjónafestu og er með stækkunargleri til að auðvelda talningu á lykkjum og/eða setja yfir línu í uppskrift.
  • Fyrirferðarlítið prjónamál úr plasti. Þægilegt til að hafa með í prjónatöskunni. Myndin sýnir US stærðir en á hinni hliðinni eru mm stærðir.  
Go to Top