1.750kr.
INNOX er snilldarlausn fyrir okkur öll sem prjónum og saumum út. Þetta eru 20 x 10 cm miðar í áberandi litum. Hver miði nær því þvert yfir flestar bækur, blöð og skjái.
Snilldin felst í því að það er ekkert lím! Miðarnir loða við allt, pappír, gler, tré, steypu og málm. Hægt er að taka þá af, færa til og endurnota aftur og aftur. Hægt er að skrifa á miðana ef vill.
Fyrir okkur sem erum í hannyrðum þá eru þetta gott hjálpartæki en þetta nýtist líka mörgum öðrum sem eru að skipuleggja verkefni og vilja setja marga miða á vegg, skrifa á þá og færa til eftir þörfum.
Stærð: 20 x 10 mm.
100 miðar í hefti.
4 litir í boði: bleikt, appelsínugult, grænt, blátt.

