-
ADDI Crasy Trio eru þríprjónar eða þrír bognir prjónar með stuttri snúru í miðjunni. Þeir eru 26cm langir og hver prjónn er með einum beittum oddi og einum bljúgum. Þannig er hægt að velja hvorum oddinum er prjónað með. Þeir henta í sokkaprjón, vettlingaprjón og ermaprjón. Fást í 4 - 8 mm. Fást einnig 26cm langir fyrir sömu not og að auki ermaprjón á fullorðins peysur. -
SOAK Mini er bréf með þvottalegi sem dugar í stóra peysu eða 2-3 þvotta ef um minni flík er að ræða. Hentug eining fyrir þá sem vilja prófa SOAK eða hafa með sér á ferð. Hvað er Soak? Soak er nútíma þvottalögur sem er umhverfisvænn. Þvottur með Soak er þægilegur, því ekki þarf að skola. Þú leggur í bleyti setur teskeið af Soak og lætur liggja í 20-30 mínútur. Mikilvægt að hafa vatnið ylvolgt eða kalt. Sparar tíma og vinnu við handþvott og fer vel með flíkina/prjónaverkefnið. Soak er frábær þvottalögur til nota fyrir allt sem við prjónum, heklum eða saumum. Allt annað sem er viðkvæmt s.s. fínn undirfatnaður, mjúkar peysur, ungbarnafatanaður, bútasaumsteppi, sundföt, líkamsræktarfatnaður og allt annað sem þú vilt fara sérstaklega vel með. Notkun: Leggja í bleyti og kreista. Þarf ekki að skola. Leggja flatt til þerris. Alltaf skynsamlegt að kanna hve litekta flík er áður en hún er lögð í bleyti. Veldu ilm eða ilmlaust hér fyrir neðan. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Grófband / chunky
- Innihald: 100% merínóull
- Lengd/þyngd: 150m/100g
- Prjónar: 5,5 - 6 mm
- Prjónfesta: 14 - 16 L og 20 - 22 umferðir á prjóna 5 - 6 mm = 10 x 10cm
- Þvottur: Handþvottur 30°C
-
Þetta er útsaumsgarn úr 100% lífrænni ull. Ullin er lituð með náttúrulegum litum sem eru unnir úr valhnetum, rabbarbara, indigó og eini. Litapallettan er sérlega falleg sem auðveldar val á litum í útsaumsverk. Útsaumgarnið hefur jafna áferð (er ekki misþráða) og er hæfilega snúðlint og hentar því afar vel í alls kyns útsaum, vefnað og fataviðgerðir. Tvinnað garnið er notað eins og það er (ekki hægt að kljúfa). Grófleikinn er u.þ.b. sá sami og 3 þræðir af árórugarni.- Woolmark vottað - góð ending, er litekta, dofnar ekki
- 100% lífræn ull (af fé sem er ekki dindilklippt)
- 60 náttúrulegir litir í boði
- Hver dokka er með 16 m
- Handþvottur við 30°C
-
KNITPRO Symfonie hringprjónar er úr birki með góðum oddi, sléttri áferð og lipurri snúru. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri og lengri, og prjónaodda og snúrur til að skrúfa saman. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Prjónarnir eru til í 40cm, 60cm, 80cm og 100cm lengdum. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi. -
Lykkjustopparar - fást í tveimur stærðum. Minni passar fyrir prjóna 1,5 mm til 5 mm og stærri fyrir 5,5 mm til 10 mm. Í raun er hægt að nota þann stærri fyrir alla grófleika prjóna. Það er gormur inn í sem heldur vel að prjónunum svo að lykkjurnar renni ekki fram af prjónunum. Ómissandi fyrir alla prjónara! -
Útsaumsgarn úr 100% bómull. Hentar vel fyrir japanskar útsaumsaðferðir eins og Sashiko og Boro en einnig allan annan útsaum. Þráðurinn er 6-faldur, en saumað er úr honum óklofnum. Hvert spor mun sjást vel og hentar því fyrir stórgerðari mynstur. Hvert spjald inniheldur 30 m. Garnið kemur á spjöldum sem auðveldar að geyma garnið og hafa skipulag á litunum. Margir litir í boði. Framleiðsluland: Japan -
Petite Knit | Cumulus Blouse O-Neck
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Cumulus Blouse með V hálsmáli. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
