• ÚTSAUMUR Á PRJÓN | MEÐ ULLARGARNI

    Price range: 12.000kr. through 18.000kr.
    Örnámskeið - eitt skipti Miðvikudagur 30. september kl. 17:30 - 20 Útsaumur er mjög skemmtileg iðja, ekki síst þegar hægt er að nota hann til að skreyta flíkur. Á þessu örnámskeiði ætlum við að velja mynstur úr bókinni EMBROIDERY ON KNITS eftir Judit Gummlich. Við munum fyrst og fremst nota alls konar ullargarn og sauma út í prjónaða prufu sem þið prjónið heima og komið með á námskeiðið (fyrirmæli um prufuna send í tölvupósti tímanlega fyrir námskeiðsbyrjun). Byrjum á nokkrum grunnsporum eins og varplegg, aftursting, lykkjuspori, fræhnútum 0g bætum fleiri sporum við eftir þörfum. Innifalið Bókin Embroidery on Knits (afhent þegar að námskeiðið byrjar) (ef þið eigið bókina þá getið þið valið að sleppa henni þegar þið skráið ykkur á námskeiðið) Útprentað mynstur úr bókinni til að draga í gegn Flíselín sem hverfur þegar að það er bleytt Útsaumsgarn í prufuna Útsaumsnálar Kaffi/te og meðlæti Hafa með eða kaupa á staðnum: Útsaumshringur (15-18 cm) Skæri Upplagt námskeið fyrir þau sem vilja læra eitthvað nýtt eða rifja upp útsaum.
    Kennari: Guðrún Hannele
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Afsláttur!

    Urth Yarns – 16 FINGERING

    Original price was: 2.495kr..Current price is: 1.497kr..

    Slétt, mjúkt og fallegt garn með örlitlum gljáa. Unnið úr fínustu merínóullinni sem gerir það svona mjúkt. Gott í ungbarnafatnað, sjöl, peysur og allt mögulegt. Margir fallegir litir.

    • Grófleiki:  Fínband / fingering / 4 ply
    • Innihald: 100% extrafín merinóull
    • Lengd/þyngd:  200m/50g
    • Prjónar:  2,25 - 3,5 mm
    • Prjónfesta:  28-32 lykkjur = 10 cm
    • Þvottur:  Ullarvagga 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Clover HEKLUNÁLAR – Soft Touch

    Price range: 895kr. through 995kr.
    CLOVER Soft Touch heklunálar eru einstaklega þægilegar í notkun. Krókurinn er mátulega beittur svo auðvelt er að stinga honum í gegnum lykkjuna án þess að kljúfa garnið.  Áferðin á málmhlutanum er hæfilega sleip þannig að lykkjurnar renna vel en haldast samt á sínum stað. Snilldarhönnun sem gerir heklið skemmtilegra. Handfangið er með gripfleti úr mjúku efni svo nálin sitji vel í hendi. Það er reynsla margra að Clover heklunálar reyni minna á hendurnar og þá verður auðveldara að hekla lengur áreynslulaust. Hægt er að kaupa Soft Touch heklunálar í stærðum 0,5mm til 6mm.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • ADDI Click snúrur er hægt að kaupa stakar í ýmsum lengdum. Athugið að lengdin sem gefin er upp er mæld þegar snúra og oddar eru festir saman og mynda hringprjón. Athugið jafnframt að 40cm og 50cm snúrur er aðeins hægt að nota með stuttum oddum. Addi snúrurnar eru liprar og þægilegar í prjóni.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Knit Pro Dreamz PRJÓNAODDAR – 13 cm

    Price range: 1.295kr. through 2.595kr.
    Symfonie DREAMZ prjónaoddarnir eru úr birki, hver grófleiki í sérstökum lit og fást í tveimur lengdum. Þessir eru 13 cm eða lengri og passa fyrir 60 cm og lengri snúrur. Hægt er að nota oddana á allar aðrar lengdir af snúrum eftir þörfum. Prjónaoddarnir eru skrúfaðir á snúrur sem fást í nokkrum lengdum. Snúrumegin við samskeytin eru göt þar sem meðfylgjandi pinna er stungið inn í til að herða og losa. Við mælum með því að pinninn sé alltaf notaður til og losa og festa prjónaodda og snúrur, annars getur prjónninn losnað á meðan prjónað er. Þægindin við að nota samsetta prjóna eru ótvíræð. Þá þarf maður ekki að eiga næstum eins marga prjóna, því samsetningarmöguleikarnir eru svo miklir.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Prjónað af ást Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo auðvelt sé að festa merkið við flíkina. Stærð 1,2 x 5 cm Litur: Dökkgrænt
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Grófleiki: Fínband / fingering / 4ply
    • Innihald: 80% ull / 20% lín/hör
    • Lengd/þyngd: 208m/50g
    • Prjónfesta 10 x 10 cm:
    • Merilin: 3 mm prjónar: 26 L / 32 umf
    • Merilin + Alpaca 1: 3 mm prjónar = 24 L / 30 umf
    • Merilin + Alpaca 2: 3,5 mm prjónar = 22 L / 26 umf
    • Merilin + Silk Mohair: 4 mm prjónar = 20 L / 24 umf
    • Þvottur: Handþvottur við 30°C
    • Garnið er spunnið og litað í Perú
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Mamma prjónaði Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo auðvelt sé að festa merkið við flíkina. Stærð: 1,2 x 5,3 cm.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Storkskonur eru duglegar að gera uppskriftir endrum og sinnum. Flestar eru klassískar og hægt að prjóna á margar kynslóðir barna. Litavalið sér hvert og eitt ykkar um eftir eigin smekk og e.t.v. tíðaranda.
    STRENGUR Hönnuður/uppskrift: Guðný Benediktsdóttir / Storkurinn Garn: Volare DK 3 (4) 5 (5) x 50g í lit A (á mynd grátt #700) og  1 x 50g í lit M (á karrýgult #285) Prjónar: Hringprjónar 60 cm 3½ og 4 mm, sokkaprjónar 3½ og 4 mm. Stærðir: 1 ( 2) 4 (6) ára
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður.
  • Petite Knit | Anker's Sweater

    Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.  Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
    Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
    Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
  • SOAK 375ml er flaska sem dugar í 75+ þvotta. Hvað er Soak? Soak er nútíma þvottalögur sem er umhverfisvænn. Þvottur með Soak er þægilegur, því ekki þarf að skola. Þú leggur í bleyti, setur teskeið af Soak og lætur liggja í 20-30 mínútur. Mikilvægt að hafa vatnið ylvolgt eða kalt. Sparar tíma og vinnu við handþvott og fer vel með flíkina/prjónaverkefnið. Soak er frábær þvottalögur til nota fyrir allt sem við prjónum, heklum eða saumum. Allt annað sem er viðkvæmt s.s. fínn undirfatnaður, mjúkar peysur, ungbarnafatnaður, bútasaumsteppi, sundföt, líkamsræktarfatnaður og allt annað sem þú vilt fara sérstaklega vel með. Notkun: Leggja í bleyti og kreista. Þarf ekki að skola. Leggja flatt til þerris. Alltaf skynsamlegt að kanna hve litekta flík er áður en hún er lögð í bleyti.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Grófleiki: Smáband /sport
    • Innihald: 40% ull, 25% silki, 25% nælon, 10% mohair
    • Lengd/þyngd: 300m/100g
    • Prjónar: 3-4 mm
    • Prjónfesta: 23-26 lykkjur  = 10 cm
    • Þvottur: Handþvottur 30°C
    Frábært garn í peysur, eitt og sér eða með silki/mohair fylgiþræði eins og í peysunni TERRAZZO frá Petiteknit. ATH. Ef þið kaupið NORO Silk Garden Sock Solo garn fylgir sokkauppskrift með FRÍTT. Veljið garnið, setjið í körfu og setjið í skilaboðagluggann hvaða uppskrift þið veljið með (fimm mismunandi í boði). Uppskriftin verður send í tölvupósti um leið og varan er afgreidd. NORO Sokkauppskrift: FLOTLYKKJUR (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: HLYNUR (prjónaðir frá tá) NORO Sokkauppskrift: LAUF (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: SNÚRA (prjónaðir frá sokklegg) NORO Sokkauppskrift: STUÐLAR & GÖT (prjónaðir frá sokklegg)
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
    • Grófleiki:  Fínband / 4 ply / fingering
    • Innihald:  90% merínóull og 10 % kasmírull
    • Lengd/þyngd:  180m/25g
    • Prjónar:  2,5-3,5 mm
    • Prjónfesta:  30 lykkjur og 40 umferðir = 10 x 10 cm
    • Þvottur:  Handþvottur 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Addi Novel HRINGPRJÓNAR

    Price range: 1.595kr. through 1.795kr.
    Vinsældir ADDI Novel hringprjónanna aukast stöðugt. Þeir eru hrufóttir með góðum oddi, úr málmi og lykkjurnar renna ekki eins vel á þeim sem gerir þá mjög hentuga fyrir þau sem vilja prjóna þéttar/fastar.  Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Prjónasnúrur fyrir Knit Pro prjónaoddana. Þessar eru úr stálvír sem er nælonhúðaður og þær eru "minnislausar". Snúran snýst 360° við samskeytin sem minnkar verulega líkurnar á því að prjónninn losni.  En eins og í öllum samsettum prjónum frá Knit Pro þarf að nota sérstakan pinna til að herða og losa þegar skipt er um prjón (ef pinninn týnist er alltaf hægt að nota nál). Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Snúrurnar fást í lengdum til að mynda 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig er hægt að nota snúrurnar til að geyma lykkjur því það fylgja tveir tappar með hverri snúru. Þá er líka hægt að fá millistykki til að tengi saman tvær snúrur eða tengja eina snúru í hring til að geyma lykkjur.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Langamma prjónaði Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni þannig að það er auðvelt að festa við flíkina. Stærð 1,2 x 5 cm
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Addi Duett HEKLUNÁL / PRJÓNN

    Price range: 895kr. through 995kr.
    addiDuett er hjálparprjónn með heklunál á öðrum endanum og prjónaoddi á hinum. Frábært áhald til nota þegar það verður lykkjufall eða þegar laga þarf villu. Svo er þetta líka venuleg heklunál. Koma í stærðum 2mm - 6mm og hver grófleiki er í sér lit. Ómissandi í hvert prjónaveski.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Útsaumsgarn úr 100% bómull. Hentar vel fyrir japanskar útsaumsaðferðir eins og Sashiko og Boro en einnig allan annan útsaum. Þráðurinn er 6-faldur, en saumað er úr honum óklofnum. Hvert spor mun sjást vel og hentar því fyrir stórgerðari mynstur. Hvert spjald inniheldur 30 m. Garnið kemur á spjöldum sem auðveldar að geyma garnið og hafa skipulag á litunum. Margir litir í boði. Framleiðsluland: Japan
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Isager Jensen

    • Grófleiki: Léttband / DK
    • Innihald: 100% ull
    • Lengd/þyngd: 250m/100g
    • Prjónfesta 10 x 10 cm:
    • Jensen: 3 mm prjónar: 22L / 28 umf
    • Jensen + Alpaca 1: 3,5 mm prjónar = 19 L / 24 umf
    • Jensen + Alpaca 2: 4,0 mm prjónar = 17 L / 24 umf
    • Jensen + Silk Mohair: 5 mm prjónar = 16 L / 20 umf
    • Þvottur: Handþvottur við 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • TÖLUR Kókostölur Stærð 15 mm Litur: Bleikur Athugið: Kókostölur eru úr náttúrulegu efni og því engar tvær alveg eins. Hægt er að snúa þeim á hvorn veginn sem vill.
  • Addi ToGo LYKKJUSTOPPARAR

    Price range: 495kr. through 550kr.
    Lykkjustopparar - fást í tveimur stærðum. Minni passar fyrir prjóna 1,5 mm til 5 mm og stærri fyrir 5,5 mm til 10 mm. Í raun er hægt að nota þann stærri fyrir alla grófleika prjóna. Það er gormur inn í sem heldur vel að prjónunum svo að lykkjurnar renni ekki fram af prjónunum. Ómissandi fyrir alla prjónara!
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Knit Pro Symfonie HRINGPRJÓNAR

    Price range: 1.145kr. through 1.995kr.
    KNITPRO Symfonie hringprjónar er úr birki með góðum oddi, sléttri áferð og lipurri snúru. Uppáhaldsprjónar margra. Hægt er að fá Symfonie sokkaprjóna, styttri og lengri, og prjónaodda og snúrur til að skrúfa saman. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Prjónarnir eru til í 40cm, 60cm, 80cm og 100cm lengdum. Knit Pro prjónarnir eru framleiddir í Indlandi við bestu mögulegar aðstæður fyrir starfsfólk. Þar á sér stað stöðug vöruþróun og þarfir prjónara eru alltaf í fyrirrúmi.
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Isager Alpaca 2

    • Grófleiki: Fínband / Fingering / 4ply
    • Innihald: 50% alpaka, 50% ull
    • Lengd/þyngd: 250 m/50 g
    • Prjónfesta 10 x 10 cm:
    • Alpaca 2: 3 mm prjónar = 26 L / 30 umf
    • Alpaca 2 + Alpaca 1: 3 mm prjónar = 24 L / 28 umf
    • Alpaca 2 + Alpaca 2: 3,5 mm prjónar = 20 L / 26 umf
    • Alpaca 2 + Silk Mohair: 4 mm prjónar = 18 L / 24 umf
    • Þvottur: Handþvottur við 30°C
    Panta This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page Details
  • Barnateppi með lóðréttum röndum sem eru prjónaðar með gatamynstri. Einfalt mynstur sem er auðvelt að læra utan að og hentar því sérstaklega vel í samkvæmis- eða sjónvarpsprjón.
    Prjóntækni: Slétt lykkja, brugðin lykkja, uppsláttur, úrtaka til vinstri, úrtaka til hægri. Uppskriftinni fylgja bæði mynsturteikningar fyrir gataprjónið  svo og ítarleg vinnulýsing fyrir þau sem vilja frekar prjóna eftir texta.
    Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku.  Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Einnig er hægt að smella á slóð sem er í tölvupósti sem sendur er eftir kaupin.
Go to Top