-
Mánaðarserían eru símynstraðir vettlingar með mynstureindum sem er auðvelt að læra og þ.a.l. skemmtilegt að prjóna.Með því að nota einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara, en þa verða vettlingarnir ekki eins! Það er auðvitað líka hægt að hafa einlitt garn í mynstrinu.Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim.Valkostir:
- Útprentuð uppskrift, val um dönsku – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
-
Petite Knit | No Frills Sweater
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Málböndin eru úr umhverfisvænu efni (ekki plast) og koma í sex mismunandi litum: Clay (rauðbrúnt), Linen (beinhvítt), Storm (grátt), Sea Glass (blágrænt), Mustard Seed (gult) og Wild Rose (bleikt). Björtu litirnir tryggja að þú finnir alltaf málbandið í prjónatöskunni. Jarðalritirnir setja fallegan svip á áhöldin þín. Málbandið sjálft er úr málmi með cm/mm og tommum og lengdin er 2 m. Cocoknits leggur áherslu á að nota umhverfisvæn efni í framleiðsluna og forðast plast eins og hægt er. Skelin utan um málbandið er úr PLA sem er 100% náttúruuppleysanlegt efni úr jurtaríkinu. Með því að sleppa lásnum tókst að gera málbandið án plasts og þannig eru líka minni líkur á því að það bili. Hvert málband kemur í endurnýtanlegum poka úr líni. Mál: 6,5 x 5 x 1,3 cm, málbandið er 2 m langt. -
Hefðbundnir sokkaprjónar frá Addi sem eru góðir í sokkaprjón, vettlingaprjón, ermar og hálsmál. Colibri prjónarnir eru úr áli og hver prjónn er í sérstökum lit. Þeir hafa slétta áferð og eru léttir. Annar oddurinn er beittari og hinn er bljúgari þannig að hægt er að velja hvaða oddi er beitt eftir verkefni. Kosturinn við álprjóna er að þeir brotna ekki og allir prjónar frá Addi eru lausir við nikkel. Fást einnig 15 cm langir. -
TREFLAUPPSKRIFT Á ÍSLENSKUÞessi trefill er marg búinn að sanna tilveru sína og tilgang. Hann heitir veiðimaðurinn því í veiði nýtist hann vel, en einnig við allar aðstæður á okkar svala landi.Tvær ástæður valda vinsældunum. Önnur er stærðin; hann er hæfilega stór, hægt að vefja tvisvar um hálsinn og binda einu sinni og það helst hann á sínum stað og þvælist ekki fyrir. Þá er þetta líka fullkomin stærð fyrir þá herra sem ganga í frökkum og vilja að trefillinn liggi innan frakkans og taki lítið pláss.Hin ástæða vinsældanna er garnið, það er hæfilega mjúkt en ekki of lint og heldur sér vel. Hver garnhnota eða -plata er úr kaflalituðu og sprengdu garni. Alls konar litir í boði.Trefillinn er einfaldur í prjóni, aðeins notaðar sléttar og brugðnar lykkjur og óprjónaðar lykkjur í byrjun umferðar. Fullkomið afslöppunarprjón.Prjónastærð: 3,5 mmGarnmagn: 100 g af ZAUBERWOLLE garninu í uppgefna stærð 20 x 125 cm.Þið getið skoðað Zauberwolle garnið HÉR. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litnúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. Hvert kefli er 30m (á meðan það eru 8m á hefðbundinni dokku). -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
- Grófleiki: Smáband / sport
- Innihald: 100% merínóull
- Lengd/þyngd: 250m/100g
- Prjónar: 3 - 3,5 mm
- Prjónfesta: 25 lykkjur og 36 umferðir = 10 cm
- Þvottur: Ullarvagga 30°C
-
Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Minni og stærri unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Soak Flatter er úði án sterkju sem sléttir, afrafmagnar og frískar upp. Óþarfi að þvo peysuna (eða flíkina) eins oft ef Flatter er til staðar. Mild umhverfisvæn formúla. Flatter auðveldar straujun bæði með eða án gufu. Úðað er jafnt yfir flíkina. Endurtekið ef óskað er eftir meiri stífni. Notað til að fríska upp á flíkur á milli þvotta eða til að koma í veg fyrir krumpur. -
Lykkjunælur eða lykkjuhaldarar sem eru hannaðar með þarfir prjónara í huga. Í staðhefðbundinnar nælu er prjónn með teygju úr silíkóni sem festist utan um prjóninn. Þannig haldast lykkjurnar á öruggum stað. Það sem gerir þetta áhald svo gott er að hægt er að hleypa lykkjunum fram af báðum endum. Frábært til að geyma lykkjur í handvegi og á fleiri stöðum. Kemur í fjórum gerðum eftir grófleika garnsins. Innihald: 2 lykkjunælur í pakka. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Þykkband / worsted / aran
- Innihald: 78% móhár, 13% ull, 9% nÆlon
- Lengd/þyngd: 170m/100g
- Prjónar: 4-5 mm
- Prjónfesta: 18 lykkjur = 10 cm
- Þvottur: Handþvottur
-
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þessi uppskrift er seld útprentuð á góðan pappír og er á DÖNSKU. Viljir þú kaupa upskriftina rafrænt má finna hana HÉR. -
25 cm lengdareining = 1.750 kr. Metraverð 7.000 kr. Innihald: 100% bómull Þræðir per cm: 4,0 Hver lengdareining er 25 cm x 90 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
Maker's Canvas skæri með slíðri Lítil og sæt skæri, fullkomin viðbót við töskurnar frá Della Q. Sömu litir fáanlegir. Slíðrið er úr V-laga kakíefni og leðri með smellu úr bronsi. Skærin eru svört merkt með 'Q' lógói. Framleiðandinn hefur sjálfbærni að leiðarljósi við framleiðslu þessarar vöru. Hvert skæraslíður er handunnið og tímalaus hönnun. -
Afsláttur!
- Grófleiki: Smáband / sport / 6ply
- Innihald: 75% ull og 25% polyamid
- Lengd/þyngd: 200m/50g
- Prjónar: 2 - 3 mm
- Prjónfesta: 30 lykkjur x 42 umferðir = 10 x 10 cm
- Þvottur: Vélþvægt við 40°C fyrir viðkvæm
- Tvær hnotur duga í sokkapar allt að stærð 46
-
Garn: Cyrano frá De Rerum Natura 1 x 100g/150m eða sambærilegt garn.Prjónar: Sokkaprjónar 4,5mm og 5 mm Stærðir: Ein stærð unglinga-/fullorðinsstærð Einlitir vettlingar með köðlum. Garnið er gróft, fyrir prjóna 6-7 en vettlingarnir eru prjónaðir á 5 mm prjóna til að fá þá þétta. Þumallinn er hliðarþumall með tungu. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Í Finnlandi er rík vettlingahefð. Þaðan koma mörg geómetrík mynstur eða símynstur með ferningum, tíglum, þríhyrningum o.fl. sem hægt er að leika sér endalaust með. Þetta vettlingamynstur er undir áhrifum þeirrar hefðar. Með því að nota síðan einlitan grunn en marglitt garn í mynstrið kemur mikil hreyfing í mynstrið sem gerir það enn áhrifaríkara. Hér er ein útgáfa af nokkrum í vettlingaseríunni: Geómetrískir vettlingar.Garn: Bio Merino 1 x 50g/150m & Edition 3 1 x 50g/50g frá Schoppel Wolle eða sambærilegt garn. Garnið í mynsturlitnum er kaflalitað og sprengt og því verða vettlingarnir ekki alveg eins!Prjónar: Sokkaprjónar 2,5mm og 3 mm Stærðir: Lítil, miðstærð og stór unglinga-/fullorðinsstærð Tvíbandaprjónaðir vettlingar, ekki úr fíngerðasta garninu, prjónast því hraðar fyrir vikið. Íprjónaður þumall, auðvelt að stækka og minnka vettlingana ef þarf. Mynstrið er auðlært og fljótprjónað. Uppskriftinni fylgir teikning af mynstrinu og nákvæm vinnulýsing.Þessi uppskrift er seld sem pdf skjal og er á íslensku. Um leið og greiðsla hefur farið fram birtist slóð á síðunni sem smellt er á til að hlaða henni niður. Slóðina er einnig að finna í kvittuninni sem send er í tölvupósti. -
Afsláttur!
SILFA armband eða framlenging á hálsmenið. Passar við fjölnota hálsfestina - skart og prjónamál. Á armbandinu er hægt að mæla fínustu og grófustu prjónana; 1,5 mm, 1,75 mm og 12 mm. Armbandið er 21 cm á lengd og fæst með 18 karata gyllingu eða úr hápóleruðu læknastáli. Festin er einnig prjónamál sem mælir 2 – 10mm prjóna, hver hringur er merktur. Eitt lykkjumerki (8mm) með ferskvatnsperlu (10mm) fylgir. 95 cm lengd, hægt að fá framlengingu (sem er líka armband) ef þið viljið lengja festina. Hægt að kaupa aukalega: Lykkjumerki með perlum og lykkjuhring. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. ATH. Það eru yfir 400 litir til í þessu garni. Þess vegna höfum við skipt litunum niður í nokkrar vörur til að létta leitina. -
Rollfix málböndin eru þýsk gæðaframleiðsla og vinsælustu málböndin hjá okkur. Þau eru þægileg í notkun; málbandið er dregið út og er með stoppara. Dregið aftur inn með því að ýta á miðjuna. Skelin er úr sterku ABS plasti og fást með alls konar skreytingum. Málbandið sjálft er líka úr endingargóðu efni sem teygist ekki. Merkingin er svört á hvítum grunni. Skelin er 5 cm í þvermál og málbandið mælir bæði í cm og tommum. Lengd 150 cm. -
Segularmband með ól úr sílikóni. Segulflöturinn er úr burstuðu stáli. Málband á innri hlið armbandsins. Passar á alla. Stærð: Armband 25,4 cm x 1,9 cm, segull 3,8 cm x 3,8 cm. Á segulinn er hægt að setja t.d. Cocoknits teljarann, prjónamerki, lítil skæri eða þráðklippur, hjálparprjóna úr málmi og annað sem festist við segul. Hentar fyrir þá sem prjóna, hekla, sauma, hárgreiðslufólk, fluguveiðifólk og þá sem ráðast í viðgerðir um helgar og vilja hafa nagla, skrúfur og annað nálægt. -
Verkefnatöskuna frá COCOKNITS er hægt að nota eins og ílát eða körfu sem stendur vel á borði eða sem tösku ef bætt er við leðurhöldum sem eru seldar sér. Efni: Sterkur pappír sem þolir þvott og eldist vel. Stærð: 15cm á dýpt x 29cm breidd x 16,5cm hæð. Inniheldur: Þrír ytri vasa, níu innri vasa. Meðferð: Þolir þvott. Sjá neðar. Gott til að halda skipulagi á prjónadótinu sínu. Hægt að nota eitt og sér eða setja inn í aðra tösku til að hafa allt á sínum stað. Prjónaverkefnið rúmast í miðhólfinu, og fylgihlutirnir og uppskriftin í hliðarvösunum. Pláss fyrir vatnsflösku, gleraugu, penna, hleðslusnúrur, lykla og annað sem þér dettur í hug að hafa með. Höldur: Göt fyrir leðurhöldur til staðar ef vill. ATH. þær þarf að kaupa sér! -
Höfundur: Kazuko Aoki Útgefandi: Shambhala Publications Inc (2015)Mjúkspjalda | 96 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 340 g | Mál: 211 x 258 x 6 mmThe Embroidered Garden : Stitching through the Seasons of a Flower Garden
Dásamlega falleg útsaumsbók eftir japanska höfundinn Kazuko Aoki. Það sést að áhugasviðið nær yfir garðyrkju jafnt sem útsaum. Kazuko Aoki yfirfærir fegurðina úr garðinum yfir í útsauminn á einstakan hátt. Fjörtíu mynstur endurspegla blómagarðinn og líka býflugurnar og fiðrildin. Teikningarnar sýna verkefnin vel og fyrir þá sem þurfa þá er aðferðirnar líka útskýrðar vel. Útsauminn er svo hægt að útfæra í barmnælur, bókakápur, nálapúða og poka. -
Stephen West | Vertices Unite
Uppskriftirnar frá Stephen West og þá sérstaklega sjölin hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin. Mikið er um djarft litaval og skemmtilegar og skýrar uppskriftir. Garn sem myndi henta vel:Urth Yarns HARVEST FINGERING, MAL Handlitað fínband, NOVITA X LAINE 4PLY, Urth Yarns UNEEK FINGERING, Lamana MILANO
Sýnishorn Storksins er úr Lamana MILANOValkostir:
- Útprentuð uppskrift – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads. Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Annie Germain | Sailor Slippers
Uppskriftin af þessum vinsæli þæfðu inniskóm er nú fáanleg á íslensku. Garn sem myndi henta vel: Kaos Yarn CHUNKY ANDEAN WOOLValkostir:
- Útprentuð uppskrift – sótt í verslun eða send frítt með öðrum vörukaupum
- Útprentuð uppskrift, send stök með bréfpósti
- Rafræn uppskrift, send með tölvupósti – öll fáanleg tungumál fylgja, sendar á virkum dögum
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads. Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Jafnþráða jafi fyrir útsaum, ólitaður. Þessi jafi hentar fyrir úttalin spor eins og t.d. krosssaum. Innihald: 100% hör/lín Þræðir per cm: 8 Hver lengdareining er 25 cm x 140 cm (breidd efnisins). Hægt er að velja eina eða fleiri lengdareiningar og við afgreiðum efnið í einum bút. 1 eining = 25 cm, 2 einingar = 50 cm, 3 einingar = 75 cm, 4 einingar = 100 cm. 25 cm lengdareining = 2.375 kr. Metraverð 9.500 kr. Athugið að það getur verið erfitt að sýna hárétta liti á tölvuskjá eða símaskjá. -
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Þetta er rafræn uppskrift. Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Spöng fyrir töskur eins og til dæmis Teddy Clutch frá Petiteknit. Stærð: lengd: 20cm, breidd 18 cm opin, 9 cm lokuð. -
Höfundur: Saeko Endo Útgefandi: David & Charles (2025)Mjúkspjalda | 112 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 460 g | Mál: 210 x 273 mm 200 krosssaumsmynstur frá Japan. Uppspretta hugmyndanna kemur frá kímónóum, blómum og hefðbundinn japanskri hönnun. Hvert mynsur er í mynsturteikningu í litum, og mörg mynstranna er hægt að laga að mismunandi stærðum. Njótið þess að sauma út mynstur sem eru síendurtekin, þannig næst hugarró og um leið getið þið skapað fallega hluti fyrir heimilið og til gjafa. -
ADDI hringprjónar úr málmi. Prjónaoddarnir eru léttir úr kopar, húðaðir með hvítu bronsi. Snúrurnar eru mjúkar og samskeyti snúru og prjóns slétt. ADDI prjónarnir eu hannaðir og framleiddir í Þýskalandi fyrir prjónara sem vilja aðeins bestu gæði. Lengd prjóna er mæld frá oddi til odds. Addi Sockwonder eru frábærir fyrir sokka, ermar, vettlinga og allt smávaxið prjónaverk. Með 70 mm lace odd og 45 mm venjulegum oddi verður mun auðveldara að prjóna fíngerðar og smágerðar flíkur. -
LAINE TUTTUGU OG ÞRJÚ Finnskt tímarit (á ensku) með prjónhönnun á heimsmælikvarða. Margir hönnuðir leggja hönd á plóg og tryggja úrval að áhugaverðum peysum og fylgihlutum. Mikil áhersla er lögð á greinagóðar uppskriftir. Þá fyglir ein mataruppskrift að auki. Stílhreint tímarit á ensku með fallegri myndatöku. Athugið að það er hægt að vera áskrifandi að LAINE tímaritunum hjá okkur. Sendu okkur skilaboð til að skrá þig. Við látum vita þegar að LAINE kemur í sölu og tökum frá eintak fyrir þig og þú sækir eða við sendum. 10% afsláttur fyrir áskrifendur. -
Olnbogabætur úr mjúku rúskinni svo peysurnar og/eða jakkarnir endist lengur. Til í nokkrum litum. Með gataröð meðfram brún til að auðvelda saumaskapinn. Koma tvær saman í pakkningu. Það er upplagt að nota Laine St. Pierre stoppugarnið til að festa bæturnar. -
Þægilegur teljari sem telur uppi 99. Hann er með lykkju sem er ætluð til að setja utan um prjóninn. Þannig er hægt að nota teljarann sem merki fyrir byrjun umferðar um leið og fylgst er með umferða- eða lykkjufjölda. Ef það hentar ekki að hafa teljarann utan um prjóninn er hægt að festa hann við prjónverkið með lykkjukrækju. Hægt er að snúa teljaranum 360° á lykkjunni, þannig snýr hann alltaf rétt. Passar fyrir 2 mm - 10 mm hringprjóna og bandprjóna. -
Ullarskafa til að hreinsa ló af ullarflíkum sem hnökra. Stundum hnökra peysur, sérstaklega ef þær eru prjónaðar úr mjúkri, snúðlinri ull. Oft eru þetta laus hár að ganga úr bandinu og peysan þannig að hreinsa sig. En stundum hnökra flíkur á álagssvæðum. Hver sem ástæðan er er gott að eiga áhald til að ná lónni af án þess að skemma peysuna eða þynna hana. Gleener er búið að margsanna notagildi sitt. Það fylgja þrír kambar með sem auðvelt er að skipta um, auk fatabursta. Fínn kambur fyrir fíngerðustu peysurnar, jafnvel úr silki eða silkiblöndu, miðlungs grófleiki sem hentar á flestar peysur og grófasti sem væri góður kambur fyrir lopapeysur eða sambærilegt garn. Gleener fæst til heimilisnota með góðu handfangi, en einnig í smærri útgáfu fyrir ferðalög. Þá er kamburinn jafnbreiður en án handfangs. Gleener er ekki bara fyrir peysur heldur einnig húsgögn, teppi og aðrar flíkur. Fataburstinn sem fylgir er upplagður til að ná dýrahárum og öðru lausu af. Engar rafhlöður. Gott fyrir umhverfið og hjálpar þér að láta flíkur og annan textíl endast lengur. -
ANCHOR árórugarn er 6 þráða útsaumsgarn úr 100% egypskri hágæða bómull. Garnið er spunnið úr extra löngum, fíngerðum þráðum og merseríserað tvisvar sem gefur garninu gljáa, styrk og litunum dýpt. Útsaumsgarnið fæst einlitt í yfir 400 litum og nokkrum marglitum. Árórugarn hentar í alls konar útsaum, úttalin spor sem og frjálsan útsaum. Garnið er klofið og notaðir einn eða fleiri þræðir eftir grófleika jafans sem saumað er í. ANCHOR árórugarn er sambærilegt í gæðum við annað árórugarn á markaðnum. Fyrir þá sem þurfa er hægt að fá upplýsingar um hvernig er hægt að para saman litanúmer á milli kerfa eða framleiðenda. ANCHOR árórugarn þolir þvott í allt að 95°C heitu vatni. -
Petite Knit | Celeste Sweater
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða Celeste Sweater barna eða herra. Þetta er rafræn uppskrift.
Þessi uppskrift er fáanleg á Íslensku. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.
Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.
-
Afi prjónaði - Pabbi prjónaði - Frændi prjónaði Merkimiðar úr vaskaskinni. Áferðin á vaskaskinni minnir á rúskinn, en er mýkra. Það heldur mýktinni, þolir þvott og lætur ekki lit. Áletrunin er hitaprentuð og endist því vel. Það eru göt á hverju horni svo að auðvelt sé að festa við flíkina. Stærðir: Afi 1,2 x 5,3 cm, Pabbi 1,2 x 5,1 cm, Frændi 1,2 x 5 cm. -
Hefbundinn saumatvinni úr 100% polyester. Hentar í allan vélsaum. Kosturinn við þennan tvinna er ekki bara styrkurinn, heldur gefur hann örlítið eftir. Þegar reynir á saum, þá eru minni líkur á saumsprettu ef þessi tvinni er notaður. Við mælum með þessum tvinna í verkefni með löngum saumum. Sparkefli með 500m. -
Útsaumshringur úr tré með góðum festingum (hægt að herða með fingrum og/eða skrúfjárni ef þarf), nauðsynlegt áhald fyrir þá sem sauma út. Ef útsaumsefnið er viðkvæmt er mælt með því að hringurinn sé vafinn með þunnri léreftsræmu eða t.d. teygjanlegri grisju sem fæst í apótekum. Þetta auðveldar vinnuna og heldur, sérstaklega þunnum, efnum betur strekktum og markar þau ekki. Það er mikilvægt að velja stærð útsaumshringsins í samræmi við verkefnið sem unnið er. Ef hringurinn er of lítill fyrir verkefnið fer mikill tími á að færa hringinn til og efnið getur skemmst. -
Frábærar merkikrækjur, enda ein af okkar allra vinsælustu vörum. Þær eru úr efni sem endist vel (brotna ekki). Krækjurnar eru mest notaðar til að merkja umferðir, t.d. úrtökur eða útaukningar. Það eru tvær stærðir fáanlegar. Þessar eru stærri. Innihald: 12 merkikræjur í tveimur litum, plastumslag til að geyma þær í fylgir. Athugið að það er betra að hafa krækjurnar lokaðar þegar þær eru ekki í notkun. -
Höfundur: Katrina Rodabaugh Útgefandi: Abrams (2018)Harðspjalda | 224 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 920 g | Mál: 186 x 236 x 22 mmMending Matters: Stitch, Patch, and Repair Your Favorite Denim & More
Mending Matters er bók fyrir þá sem vilja læra aðferðir við að gera við fatnað og fá hugmyndir að skemmtilegum útfærslum. Aðferðirnar skila nútímalegum og áberandi viðgerðum (engin ástæða til að þær sjáist ekki) með hefðbundnum sporum. Í grunninn eru aðferðirnar einfaldar en útfærslurnar geta verið margar.Í dag eru fataviðgerðir ekki aðeins skynsamlegar til að lengja líf fatnaðar, heldur nauðsynlegar fyrir umhverfið. Höfundurinn Katrina Rodabaugh fer í gegnum alls konar hugmyndafræði sem tengist fataviðgerðum í þessari bók, auk þess að undirstrika mikilvægi handavinnu. -
Höfundur: Louise Crowther Útgefandi: David & Charles (2019)Hér getið þið skoðað myndir úr bókinni: Knitted Animal FriendsMjúkspjalda | 128 bls. Tungumál: Enska Þyngd: 522 g | Mál: 210 x 273 x 12,7 mm -
ADDI Click Lace Short hringprjónasett inniheldur 8 pör af prjónaoddum úr málmi í stærðum 3,5mm til 8mm. Hvert prjónaoddapar er með löngum og góðum oddum (lace), en prjónarnir sjálfir eru styttri svo hægt sé að nota til að mynda 40cm eða lengri hringprjóna. Það fylgja með 5 addi snúrur, liprar eins og ADDI prjónasnúrurnar eru; 40cm, 50cm, 60cm, 80cm og 100cm. Einnig fylgir með tengi til að tengja saman snúrur, gripbleðill til að auðvelda tengingu á oddi og snúru og gyllt næla til skrauts. ADDI Click prjónunum er smellt við snúrurnar (enginn skrúfgangur) og losna því ekki á meðan prjónað er. Hægt er að bæta við settið með því að kaupa fleiri stærðir af prjónaoddum, bæði styttri og allt uppí 12mm í löngum oddum. Einnig er hægt að kaupa viðbótar snúrur stakar. Prjónasettið kemur í þægilegri tösku þar sem er rennt hólf fyrir alla smáhlutina og hver prjónn á sinn stað.
