-
Peysurnar og flíkurnar sem má finna í ROWAN #80
Höfundur: ROWAN Útgefandi: Rowan (2026)Mjúkspjalda | 146 bls. Tungumál: Enska (dönsk þýðing fáanleg) Þyngd: 850 g | Mál: 240 x 310 mm ROWAN tímaritin koma út tvisvar á ári, vor- og sumarblað og haust- og vetrarblað. Hver tímarit er fullt af uppskriftum fyrir dömur og herra, peysur og fylgihlutir eftir helstu hönnuði Rowan hvers tíma. Flestar uppskriftirnar eru fyrir prjón en það eru einnig hekluppskriftir inn á milli. Í nýjustu blöðunum hefur peysum sem eru prjónaðar í hring og jafnvel ofan frá fjölgað. Storkurinn er ein af fáum garnbúðum sem hafa selt Rowan garn og tímarit frá upphafi Rowan. Við eigum því sýnishorn af öllum útgefnum blöðum og mörg þeirra eru enn í sölu. -
Dreamz heklunálarnar eru úr birki með slétta og mjúka áferð svo garnið rennur vel á yfirborðinu. Oddurinn fremst á króknum er hæfilega beittur til að komast auðveldlega í gegnum lykkjurnar. Hvert númer er í sérstökum lit, alveg eins og í prjónunum. Hver endi er með skrúfgangi þannig að hægt er að skrúfa snúru við í ýmsum lengdum og nota heklunálarnar í krækjuhekli (túnesísku, afgönsku hekli). Snúrurnar fyrir skiptiprjónana passa líka á heklunálarnar. -
Petite Knit er merki danska prjónhönnuðarins Mette Wendelboe Okkels. Hún hannar og útfærir uppskriftir á börn og fullorðna í klassískum nútímalegum stíl. Mette tengir um leið gamlar prjónahefðir við nýjar aðferðir. Uppskriftirnar eru skýrar og gott að fara eftir þeim. Skoða uppskriftir frá PetiteKnit sem þýddar hafa verið á íslensku HÉR. Þetta er rafræn uppskrift. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.
Uppskriftir eru keyptar handvirkt fyrir hvern og einn og eru afgreiddar á opnunartíma verslunarinnar.

Isager er rótgróið dankst fyrirtæki stofnað af Marianne Isager. Þau framleiða gæða garn úr náttúrulegum hráefnum ásamt uppskriftum sem henta vel fyrir garnið frá þeim. Uppskriftirnar eru vandaðar og skýrar og gott er að fylgja þeim. Þetta er rafræn uppskrift. Við kaup á rafrænni uppskrift færð þú aðgang að öllum tungumálum sem búið er að þýða uppskriftina á.Uppskriftin kemur í tölvupósti frá Ravelry Downloads.

HELSINKI
Þetta leðurbox ar hannað fyrir þau sem vilja hafa hlutina á sínum stað. Allir litlu smáhlutirnir sem enda oftast neðst á töskubotninum; prjónamerki, nálar, tölur o.fl. Framleiðendur Muud trúa því að þau sem prjóna og hekla eigi það skilið að geyma fylgihlutina sína í fallegum hrislum, bæði heima og á ferðinni. Þessi hönnun er lítið og fallegt veski með mikið notagildi. Veskið er framleitt út gæðaleðri og passar vel við aðrar vörur frá Muud. Það er einnig upplagt að nota Helsinki veskið sem skartgripaskrín. Veskinu er lokað með rennilás og það er þægilegur vasi að innanverðu. Stærðir Hæð: 5,5 cm Þvermál: 7,5 cm Efni: Leður Litur: Viskí brúnt -
Verkefnataska
BTURN frá Muud er þægileg verkefnataska með axlaról. Taskan er hönnuð og framleidd úr gæðaleðri, notendavæn, með nægt rými fyrir verk í vinnslu, garn og áhöld. Taskan er með þrjú rennd hólf sem opnast öll vel og gerir allt skipulag þægilegra. Neðsta hólfið er stærst og er með vösum meðfram hliðunum. Hin hólfin eru grynnri. Þá er góð yfirsýn yfir allt innihaldið og hægt að hafa röð og reglu á öllu. Taskan er frábær fyrir þau sem prjóna eða eru í öðrum hannyrðum. Það kæmist t.d. útsaumshringur sem er 21 cm í hólfin. Upplagt fyrir þrjú aðskilin verkefni, t.d. prjón, útsaum og hekl eða fyrir peysu neðst, ungbarnapeysu í miðhólfið og sokka eða vettlinga efst. Hægt er að stilla lengd axlarólarinnar, en það er líka gott minna handfang til að halda á henni. Í efsta hólfinu er vasi með rennilás á innanverðu lokinu. Upplýsingar Gæðaleður sem endist aldur og ævi Hrinlaga Lokast með þremur rennilásum Þrjú stór hólf Vasi með rennilás Handfang að ofan Stillanleg axlaról sem hægt er að taka af - 130 cm Fleiri axlarólar frá Muud passa á töskuna Fóðrið er úr polydrill með sléttri áferð sem er auðvelt að halda hreinu Stærðir Hæð: 27 cm Þvermál: 23 cm Þyngd: 880 g Litur: Viskí brúnt -
INNOX er snilldarlausn fyrir okkur öll sem prjónum og saumum út. Þetta eru 20 x 10 cm miðar í áberandi litum. Hver miði nær því þvert yfir flestar bækur, blöð og skjái. Snilldin felst í því að það er ekkert lím! Miðarnir loða við allt, pappír, gler, tré, steypu og málm. Hægt er að taka þá af, færa til og endurnota aftur og aftur. Hægt er að skrifa á miðana ef vill. Fyrir okkur sem erum í hannyrðum þá eru þetta gott hjálpartæki en þetta nýtist líka mörgum öðrum sem eru að skipuleggja verkefni og vilja setja marga miða á vegg, skrifa á þá og færa til eftir þörfum. Stærð: 20 x 10 mm. 100 miðar í hefti. 4 litir í boði: bleikt, appelsínugult, grænt, blátt.