Price range: 1.195kr. through 1.395kr.
Dreamz heklunálarnar eru úr birki með slétta og mjúka áferð svo garnið rennur vel á yfirborðinu. Oddurinn fremst á króknum er hæfilega beittur til að komast auðveldlega í gegnum lykkjurnar. Hvert númer er í sérstökum lit, alveg eins og í prjónunum. Hver endi er með skrúfgangi þannig að hægt er að skrúfa snúru við í ýmsum lengdum og nota heklunálarnar í krækjuhekli (túnesísku, afgönsku hekli). Snúrurnar fyrir skiptiprjónana passa líka á heklunálarnar.

